06.12.1933
Neðri deild: 27. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 247 í B-deild Alþingistíðinda. (211)

2. mál, kosningar til Alþingis

Hannes Jónsson [óyfirl.]:

Ég á hér brtt. á þskj. 330, ásamt þeim hv. þm. Borgf. og hv. 2. þm. Skagf. — Þessi brtt. fer fram á það, að gerðar verði að nokkru leyti breyt. á 13. brtt. á þskj. 320. Við höfum nú gert talsvert margar brtt. við frv. og léðum við stjskrn. þær til athugunar. Hv. n. féllst nú á flestar þeirra, en hefir vikið frá þeim að því er efni þessarar brtt. snertir. Við lögðum til, að uppbótarsætunum yrði skipt svo, að 3. hvert sæti félli á þá skrá, sem flokkunum er leyft að bera fram samkv. 30. gr. Við lögðum til, að þessi röðun flokksstjórnar kæmi þannig til greina, að þeim félli til 3. hvert sæti, en að öðru leyti færi röðin eftir ákvæðum 128. gr., þó svo, að ef 1. maður á skrá tekur sæti sem uppbótarþm. eftir reglu 1. málsgr., þá tekur næsti maður sæti hans. Þessi hefir nú n. breytt svo, að í stað þess að við lögðum til, að af skránni yrði tekið í 3. og 6. sætið, þá leggur hún til, að af skránni verði tekinn maður í 1. og 4. sæti o. s. frv., og ef sá maður á skránni hefir komið inn eftir aðalreglunni, þá taki næsti maður á skránni sæti hans. Þarna ber að vísu ekki mjög mikið á milli, en þó svo, að okkur flm. till. þótti rétt að koma fram með brtt. og taka það, sem betra er. Munurinn er sá, að eftir till. n. ráða flokksstjórnir ávallt fyrsta sætinu, og það alltaf. Sá maður, sem flest fær atkv., verður ávallt frambjóðandi hér í Rvík. Sá þm. verður því sama og sjálfkjörinn, en honum er líka ráðið af flokksstjórnunum. Eftir okkar reglu verður sá maður fyrstur á listanum, þá sá, er hæsta hlutfallstölu fær, og loks sá þriðji af skránni. Hafi nú sá maður áður fengið sæti á listanum eftir ákvæðum 1. málsgr.atkv.tölu eða hlutfallstölu), þá kemur 3. maður inn á atkv.fjölda, 4. maður á hlutfallstölu, 5. maður á atkv.fjölda og loks 6. maður af skránni. Ef því skráin tapar 3. sætinu af framantöldum ástæðum, öðlast hún fyrst rétt til 6. sætis.

Ég geri ráð fyrir, þar sem málið hefir verið rætt svona mikið, að ekki þurfi frekari skýringu að sinni. Vænti ég, að hv. deild geti fallizt á brtt. okkar.