06.12.1933
Neðri deild: 27. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 248 í B-deild Alþingistíðinda. (212)

2. mál, kosningar til Alþingis

Vilmundur Jónsson:

Ég geri ekki ráð fyrir, að það þurfi mörg orð til að hrekja viðbárur hv. 1. þm. Reykv. Mér skilst. að hv. þdm. hafi fullkomlega áttað sig á því, hversu herfileg rökvilla það er, að þessi regla hv. 1. þm. Reykv. og hv. þm. Snæf., „Möllers aðferðin“, eigi nokkuð skylt við reglur hlutfallskosninga eins og þær tíðkast. Ég skal taka dæmi til að sanna þetta. Það á að kjósa 12 fulltrúa. Fram koma 2 listar. Annar fær 10 þús. atkv., hinn 5 þús. atkv. Eftir venjulegum hlutfallskosningareglum mundi maður álykta, að annar listinn ætti að fá 8 menn kosna, en hinn 4. En nú skulum við skjóta inn þeim möguleika, sem er í samræmi við það, sem hér um ræðir, að stærri flokkurinn hafi áður fengið kosna 10 af þeim fulltrúum, sem honum ber, en hinn 1. Hugsum okkur ennfremur, að meðalatkv.tala þess flokks, sem leggur til hlutfallstöluna, hafi verið 200. Hvað skeður þá? Fær sá flokkurinn, sem átti rétt á sætum eftir almennum hlutfallskosningum, þennan eina, sem eftir er? Nei, ónei! Eftir „Möllers-aðferð“ yrði útreikningurinn þannig: 10000 ÷ 10 x 200 (=2000) =8000; 5000 ÷ 1x200 (=200) = 4800. Og hver fær svo fulltrúann? Vitanlega sá listinn, sem á eftir fleiri atkv. Og hann fær því 11 sæti, en hinn verður að láta sér nægja sinn 1, þó að samkv. venjulegum reglum hlutfallskosninga ætti sá atkv.fleiri að fá 8, en hinn 4.

Ég vona nú, að hv. þdm., og jafnvel hv. þm. Snæf., sjái, að þetta er ekkert sambærilegt við venjulegar hlutfallskosningar. Hér er tveimur aðferðum ruglað saman, og það gerir niðurstöðu kosninganna að hreinustu endileysu. Hv. 1. þm. Reykv. heldur því fram, að jafna beri þingsæti flokkanna eftir afgangsatkv.tölu hvers flokks. En það er nú svo, að afgangsatkv. og afgangsatkv. eiga ekki saman nema að nafni til. Hefi ég sýnt fram á það með órækum dæmum, að ekki verður á móti mælt með rökum. Hygg ég, að hv. deild verði litlu fróðari, þó að meira sé um þetta rætt. Og þótt hv. 1. þm. Reykv. vilji segja, að ég hafi reiknað með of lágum meðalatkv.tölum, þá er það nú fyrst og fremst alls ekki víst. Og þótt svo væri, þá er og á ekki að vera hægt að færa útreikningana út í neinar öfgar, nema því aðeins, að skekkja liggi í þeirri aðferð, sem notuð er. En svo eru það engar öfgatölur, sem ég hefi farið með. Ekki þarf annað en að flokkar í litlu kjördæmi skipti um nafn. Þá er öllu snúið í villu, viðlíka og þá, sem ég hefi lýst, svo að ekkert vit getur orðið í úthlutun uppbótarþingsætanna með þeirri meinlokuaðferð, sem „Möllers aðferðin“ er.

Um till. hv. V.-Húnv. o. fl. skal ég ekki margt segja. Afstaða mín til hennar er ljós. Það voru fullkomnir nauðasamningar fyrir mig að ganga að brtt. stjskrn., og eins og ég hefi áður sagt, eru flokksmenn mínir bæði hér og í hv. Ed. óbundnir um það atriði. Það eitt er flokksmál okkar jafnaðarmanna í þessu sambandi, að flokkarnir hafi sem fyllstan og frjálsastan rétt á að skipa frambjóðendum á landslista. Það var af neyð, að ég fyrir mitt leyti slakaði til á þeim fyllsta rétti, sem ég áleit, að stjskr. heimilaði að þessu leyti, og aðeins gert af ótta við það, að annars yrði sú heimild með öllu í burtu felld.