06.12.1933
Neðri deild: 27. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 252 í B-deild Alþingistíðinda. (215)
2. mál, kosningar til Alþingis
Gísli Sveinsson:
Ég skal aðeins á þessu væntanlega síðasta stigi málsins í Nd. víkja fáeinum orðum að brtt., sem ég hefi borið fram á þskj. 321 ásamt hv. 1. þm. Eyf.
Það hefir komið fram við umr. hér, og þó meira við umr. í Ed., að eitthvert samkomulag hafði verið gert um landslista á síðasta þingi og að stjskr. gæfi til kynna, hverskonar samkomulag væri hér um að ræða. Ég viðurkenni, að samkomulag hafi orðið um þetta atriði að því leyti, sem um það er ákveðið í stjskr., því að þar var sagt, að heimilt væri að hafa landslista í kjöri við almennar kosningar, og a. m. k. annaðhvert sæti á listanum skuli skipað frambjóðendum í einstökum kjördæmum. Um annað en þetta getur ekki hafa verið samkomulag.
Þetta ákvæði um landslista var sett inn í frv. á síðustu stundu, því að Alþfl. gerði það að skilyrði, að það væri tekið upp í sjálfa stjskr. Nú gerði stjfrv. til kosningal. ráð fyrir landslista, svo sem vera bar, en þegar frv. kom út úr þessari d., var aðeins leyfð ein tegund landslista, sem sé, að allir frambjóðendur væru á listanum, m. ö. o. sá listi, sem er kallaður óraðaður landslisti. Þegar til Ed. kom, voru nokkrir menn, helzt Alþfl menn, sem óskuðu, að væri leyft að hafa tvennskonar landslista, bæði raðaðan og óraðaðan, og þannig var frv. afgr. frá Ed.
Nú hefir skipazt svo, að fulltrúi Alþfl. í stjskrn. hefir gengið inn á, að þessu mætti víkja til. Hann hefir að vísu haldið fast á að tryggja íhlutun flokksstjórnanna, og þannig ganga brtt. n. út á það hvað þetta snertir, að skrá megi fylgja frá flokkunum yfir það, hvernig þeir óska, að röðunin verði, og þeim heimilt að hafa áhrif á 3. hvern mann á listanum samkv. því, sem þeir eiga að gefa til kynna á skránni. Þetta tel ég alveg fullnægingu á þeirra óskum, og þess vegna álít ég, að hv. þm. N.-Ísf. þurfi ekki að telja þetta neina nauðasamninga, þegar þetta er allt frjálst. Og þó að þetta sé ekki eins og það var, þegar frv. fór út úr Nd., þá fullnægir þetta þó ákvæðum stjskr., því að hér er ákveðinn landslisti, og jafnaðarmenn geta alveg eins og hinir flokkarnir haft áhrif á landslista með því að hafa frambjóðendur í nógu mörgum kjördæmum. Nú er í breyt., sem samkomulag hefir orðið um í n., gengið inn á þeirra svið um íhlutun þá, sem flokkarnir eiga að fá um röðun og skipun landslista. Brtt. á þskj. 330, frá hv. þm. V.-Húnv. og fleiri, raskar ekki þessu, að þeim sé heimilt að hafa íhlutun um skipun landslista, aðeins lagt til, að röðunin verði önnur en breyt. frá okkur segir. Hér er því ekki um nein svik eða brigðmælgi að ræða, hvorki fyrr né síðar, því að með öllum þessum brtt. er gengið lengra inn á þeirra mál en þörf krefur samkv. stjskrfrv.
Þá er þessi brtt., sem borin er fram af mér og hv. 2. þm. Eyf. Hún snertir í raun og veru ekkert aðalatriðið í málinu, heldur er það leiðrétting á því, sem kom inn í kosningalögin. Það var samþ. í d. síðast, að vald flokksstjórnanna væri minnkað. Tilætlunin var sú í frv. stj., og eins í frv. eins og það kom frá n. hér í d., að viðurkenningu flokksstjórnar þyrfti til þess, að frambjóðandi í kjördæmi gæti talizt til stjórnmálaflokks. Þessu undu menn ekki vel, og þá bar ég fram ásamt þessum hv. þm. till. um það, að prófkosning í hverju kjördæmi skæri úr því, hverjir væru viðurkenndir hjá flokknum, en menn voru ekki ánægðir með það, og að síðustu var samþ. breyt., þar sem viðurkenningarvald flokksstjórnanna var afnumið, eins og nú stendur í 27. gr., að frambjóðandi í kjördæmi hafi rétt til að telja sig til ákveðins flokks, ef hann fær um það yfirlýsingu frá meðmælendum sínum. En þegar svo er komið, þá er óþarfi að halda því ákvæði, að frambjóðendur á efri hluta kjörseðils séu ekki aðeins til skýringar að kenna sig til ákveðins flokks, heldur að þeim sé raðað eftir flokksheiti, því að nú er ætlazt til þess í frv. að raðað sé á listann eftir stafrófsröð flokkanna, en til þess er engin ástæða. Öðru máli er að gegna með landslistann. Þó þessi breyt. á röðun efri hluta listans verði samþ., þá heldur það ákvæði sér, sem nú er í frv., að á landslista skuli flokksstafrófið ráða, því að hann er óbreytanlegur, eins um land allt. Þessar tvær reglur eru því alveg sambærilegar, að á efri hlutanum sé raðað eftir stafrófsröð frambjóðenda, en á neðri hlutanum eftir stafrófsröð flokkanna. Þetta býst ég við, að flestir hv. þm. geti skilið og áttað sig á.