06.12.1933
Neðri deild: 27. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 256 í B-deild Alþingistíðinda. (217)

2. mál, kosningar til Alþingis

Jakob Möller:

Ég skal, vegna þess að hv. þm. N.-Ísf. gerir svo mikið úr annmarka á till. okkar, leyfa mér að bera fram skrifl. brtt., sem ég vænti, að hæstv. forseti leiti afbrigða fyrir. Brtt. hljóðar svo: „Aftan við 2. málsgr. komi ný málsgr., svo hljóðandi: Meðaltal atkvæða flokks á hvern kosinn þingmann, sem ekki nemur 1% af öllum greiddum gildum atkvæðum í kosningum, skal þó því aðeins nota sem hlutfallstölu kosninga, að þingmenn flokksins, kosnir í kjördæmum, séu fleiri en 2; að öðrum kosti verður næstlægsta talan hlutfallstala kosninganna“. Þessi till., ef samþ. yrði, ætti að girða fyrir þann hugsanlega möguleika um óhæfilega lága hlutfallstölu. Hér er gert ráð fyrir, að lægsta tala verði aðeins notuð, ef flokkurinn fær kosna minnst 3 þm., en fái hann ekki svo marga þm. kosna, verður næstlægsta talan hlutfallstala.

Ég þarf ekki miklu að svara hv. þm. N.-Ísf. Hann benti á það sem sönnun þess, hvað lagt væri á tæpasta vað með till. okkar, að ef Alþfl. hefði fengið 50 atkv. færra en hann fékk við síðustu kosningar, hefði hann fengið aðeins 2 þm. kosna, en hann hljóp bara yfir það, að ef flokkurinn hefði orðið svo hart úti við kjördæmakosninguna, þá hefði hann vitanlega haft þeim mun meiri rétt til uppbótarsætanna, því að þá hefði hann haft svo mörg afgangsatkv., og það er það, sem okkar till. tryggir, að því fleiri afgangsatkv. sem hver flokkur hefir, því fleiri uppbótarsæti fær hann. (VJ: Atkv. á Seyðisfirði hækka lítið atkvæðatölu okkar). Það hækkar hana þó nokkuð, og það sem hér var um að ræða, var að atkvæðatala þeirra ykist, en minnkaði ekki.

Hv. þm. N.-Ísf. sagði, að stjskr. miðaði ekki við afgangsatkv. En við höfum sýnt fram á, að með brtt. okkar er réttlætinu fullnægt jafnvel betur en stjskr. gerir ráð fyrir. Flokkarnir fá nákvæmlega jafnmarga þm. og þeir eiga rétt til. Þá eru eftir afgangsatkvæðin, og við þau verða uppbótarsætin að miðast. Um þetta þýðir ekki að taka einstök dæmi. Nokkur ójöfnuður hlýtur að koma fram, hvor aðferðin sem notuð er. Þótt hv. þm. N.-Ísf. leiti til Þorkels Þorkelssonar um þetta atriði, veit ég, að hann segir hið sama og ég. En okkar brtt. hefir það fram yfir hans, að ekki er hægt að nota sömu atkvæðin tvisvar til þess að hafa áhrif á kjördæmakosningar og landskjör.

Hv. þm. N.-Ísf. sagði, að við ætluðum með þessu að ná tveim uppbótarsætum af Alþfl. Eftir síðustu kosningum að dæma hefði Sjálfstfl. fengið einu sæti fleira og meiri hl. þingmanna, 25 af 49. En ef atkvæðamagn flokksins þá er athugað kemur líka í ljós, að á bak við hann stendur ákveðinn meiri hl. þeirra kjósenda, sem til greina kemur við skipun þingsins. Og ef flokkur hefir meiri hl. kjósenda á bak við sig, á hann líka rétt á meiri hl. þingmanna. Þetta er það, sem hv. þm. N.-Ísf. kappkostar að fyrirbyggja. Vera má, að honum takist það, en þó svo væri, er það ekki réttlætið, sem hefir hrósað sigri.