03.11.1933
Sameinað þing: 3. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 37 í B-deild Alþingistíðinda. (23)

Rannsókn kjörbréfa

Haraldur Guðmundsson [óyfirl.]:

Út af þeim ummælum hæstv. dómsmrh., að þar sem veitt hafi verið aðstoð við kosningu utan kjörstaða í Rvík og ekki kært yfir, þá sé ekki ástæða til þess að taka til greina kærur um þetta efni frá Hafnarfirði, vil ég segja það, að ég tel ekki rétt af Alþingi að ganga framhjá því, þegar það veit, að lög þau, er það setur, eru brotin og gengið á snið við þau, eins og t. d. í þessu tilfelli. Ég t. d. álít með öllu óleyfilegt að veita aðstoð við kosningar utan kjörstaða, og mér er líka kunnugt um, að lögmaðurinn hér í Rvík hefir litið þannig á líka, því að hann hefir tekið fram við þá, sem hann hefir veitt aðstoð undir þessum kringumstæðum, að þeir mættu búast við, að atkvæði þeirra yrðu dæmd ógild, en undirkjörstjórnin hér hefir þó ekki séð ástæðu til þess.

Þá sagði hæstv. dómsmrh. í fyrri ræðu sinni, að það hefði verið sök undirkjörstjórnarinnar í Hafnarfirði, að það varð opinbert, hvernig þessir umræddu 6 kjósendur í Hafnarfirði kusu. Þetta er bara ekki rétt hjá hæstv. ráðh. Undirkjörstjórnin úrskurðaði ekkert um þetta, heldur lét seðlana ganga beint til yfirkjörstjórnar, og það var skylda hennar að láta þá í atkvæðakassann, úr því að hún tók þá gilda. En í stað þess heldur hún þeim sér og skoðar þá vandlega, og brýtur með því þá leynd, sem á að vera yfir kosningunum. Annars leit hæstv. ráðh. ekki svona á þessi mál 1924. Þá var eins og kunnugt er kært yfir kosningunni á Ísafirði. Munaði þá einu atkv. á milli okkar frambjóðendanna, og það vafaatkvæði, sem sent var hingað suður, opnað hér og gefið keppinaut mínum.

Ég verð að segja það, að mér kom allundarlega fyrir það, sem hv. þm. V.-Sk. sagði. Hann byrjaði að tala um það, að Alþingi hefði ekki haft neina frambærilega ástæðu til þess að kveða svo á, að vitundarvottar skyldu vera við atkvgr. utan kjörstaða. En hvað kemur það þessu máli við? Alþingi hefir sett þetta ákvæði inn í lögin, og eftir því ber að hegða sér. Annars var það svo, að þingið hafði fulla ástæðu til þess að gera þetta, þar eð kosningu eftir kosningu hafði þessi atkvgr. utan kjörstaða verið misnotuð. Að hér sé glompa á lögunum, er því hrein og bein vitleysa. Lögin kveða eins skýrt á um það og hægt er, að vitundarvottar votti það, að kjósandi hafi kosið aðstoðarlaust og í einrúmi. Hér er því ekki um neina glompu að ræða nema í hugsunarhætti þessa hv. þm. Þar er hver glompan annari stærri.

Það liggur alveg skýrt fyrir, eftir því sem fram hefir komið í málinu, að hér hafa tveir gífurlegir ágallar átt sér stað um kosninguna; það er vottaleysið og aðstoðin við atkvæðagreiðsluna utan kjörstaða, og ber því að ógilda hana með öllu.

Þá vil ég benda á enn eitt í þessu máli, og það er, að atkvæðamunur frambjóðendanna hefir verið talinn 22 atkv. Það er nú sýnt samkv. gerðabók kjörstjórnarinnar, að þegar lokið var talningu þeirra atkvæða, sem greidd voru á kjörstað, þá hafði Kjartan Ólafsson 19 atkv. fram yfir Bjarna. Sex atkv. voru svo tekin gild, sem Bjarni átti, en veitt var aðstoð við og því samkv. lögunum ógild. Þá er og vitanlegt, að 9 atkv. voru tekin gild, sem annaðhvort vantaði nafn kjósandans á eða nafn sýslumannsins. Séu þessi 15 atkv. dregin frá 22, þá eru ekki eftir nema 7, og hefði svo atkv. manns þess, er sýslumaður neitaði að aðstoða, fallið á Kjartan, þá er mismunurinn ekki orðinn nema 6 atkv., og er það svo lítill munur, að ekki hafa mátt vera miklar misfellur til þess að hann hefði ekki snúizt við. Annars er rétt að taka það fram, að það var ekki bæjarfógetinn sjálfur, sem sá um undirbúning kosningarinnar, heldur fulltrúi hans. Bæjarfógetinn var í þingaferðum. En fulltrúinn er talinn maður mjög pólitískur og jafnframt hlutdrægur. Bera andstæðingar hans því afarlítið traust til hans.