07.12.1933
Neðri deild: 28. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 268 í B-deild Alþingistíðinda. (242)
2. mál, kosningar til Alþingis
Halldór Stefánsson:
Það er ekki með öllu óskemmtilegt að hlýða á fulltrúa þeirra flokka sem misnotað hafa orðið „réttlætismál“ svo hrapallega nú um hríð vera að deila um það innbyrðis, hvað sé réttlæti í þessu efni. Hv. þm. N.-Ísf. kallar það réttlæti, að reglunum sé hagað þannig, sem hans flokki gæti orðið mest til framdráttar, en fulltrúar sjálfstæðismanna telja réttlætinu fullnægt, ef reglunum væri hagað þannig, að stærsti flokkurinn, þ. e. þeirra eiginn flokkur, hefði mestan hagnað af. Báðir ákölluðu forseta hástöfum um að koma sínu máli til liðs og úrskurða till. hins aðilans frá atkvgr., af því hún kæmi of nærri stjskr. Hæstv. forseti er nú í ólíkt meiri vanda staddur en þegar ég krafði hann um samskonar úrskurð um ákveðið atriði í frv. af þessum sömu ástæðum. Þá vísaði hann til þessara sömu manna sem „autoritet“, sem hann byggði á úrskurð sinn, sem nú liggja í hárinu hver á öðrum.
Annars er þessi deila um flokkshagsmuni aðeins forleikur að þeirri deilu, sem framundan er, um það, hvort hærra eigi að setja flokkshagsmuni eða hagsmuni þjóðarinnar. Er ekkert líklegra en að slíkar deildir endi með því, að lýðræðið liði undir lok. Með þessu er því þjóðræðið að brugga sjálfu sér banaráð. Ég vara við þessu, því að þegar flokkshagnaður og ofbeldishugur er látið sitja í fyrirrúmi fyrir þjóðarhagsmunum, þá er ekki langt til þess, að allt logi í ófriði innanlands, og endirinn verður sá, að lýðræðið verður afnumið, eins og við þekkjum dæmi til úr sögunni.
Um brtt. á þskj. 322 og 323 hefir aðallega verið deilt við þessa umr. Þær hafa verið bornar saman hvor við aðra, en minna gert að því að bera hvora þeirra um sig saman við ákvæði frv. eins og þau eru. Við þessar umr. hefir mér orðið það ljóst, að till. hv. þm. N.-Ísf. er réttari og réttlátari en till. sjálfstæðismanna. Hitt er þó vafamál, hvort hún er betri en ákvæði frv. eins og það er. Ég skal að vísu játa, að það er erfitt að átta sig á jafnflóknu máli og þessu á svo skömmum tíma, en mér skilst þó eftir þá stuttu yfirvegun, sem kostur hefir verið á, að ákvæði frv. séu engu verri. Mér virðist, að brtt. hv. þm. N.-Ísf. geri ráð fyrir að úthluta uppbótarsætum, þar til komið er niður fyrir hlutfallstöluna. Það má vera, að þessi skilningur sé ekki í samræmi við skilning meiri hl. Auk þessa efast ég stórlega um, að niðurlag till. sé rétt orðað.
Ég mun greiða atkv. á móti þessari till. hv. þm. N.-Ísf., kýs heldur frvgr. óbreytta.
Ég ætla ekki að ræða um þær aðrar till., sem hér liggja fyrir. Ég get fallizt á allar þær till., sem n. ber fram einhuga, og sömuleiðis á till. hv. þm. V.-Sk., hv. 1. þm. Reykv., hv. 1. þm. Eyf. og hv. þm. V.-Húnv.