07.12.1933
Neðri deild: 28. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 283 í B-deild Alþingistíðinda. (252)
2. mál, kosningar til Alþingis
Vilmundur Jónsson:
Ég vil svara hv. þm. V.-Húnv. því, að ég fór rétt með þær tölur, sem ég nefndi, að öðru leyti en því, sem litlu sem engu skiptir, að ég gleymdi því, að svo hét sem þm. N.-Þ. byði sig fram utan flokka. Þar sem atkvæðatala hans er svo lág, munar það ekki nema sáralitlu á hlutfallstölunni.
Viðvíkjandi því, að kosning féll síðast niður í Strandasýslu, með því að aðeins einn frambjóðandi var þar í kjöri vil ég geta þess, að slíkt getur alveg eins komið fyrir, eftir að farið verður að kjósa eftir kosningalögum þeim, sem nú eru í smiðum.
Ég vil enda ræður mínar í þessu máli með því að mótmæla því, að ég hafi á nokkurn hátt tekið afstöðu til aðferðanna við útreikning uppbótarsætanna með tilliti til þess, hvort litlir flokkar eða stórir væru líklegir til að hafa af þeim hagsmuni. Ég hefi aðeins leitazt við að koma þessum útreikningum í sem bezt samræmi við ákvæði stjskr. án alls tillits til þess, hvað kann að koma litlum flokkum vel og hvað kann að koma stórum flokkum vel. Ég hefi aðeins viljað reikna rétt. Sjálfstæðismennirnir geta haft heiðurinn af því að hafa verið með undirhyggju í þessu máli, enda leyni ég því ekki, að ég gruna þá um græsku.
Í þessu sambandi vil ég taka fram, að þó ég hefði getað komið þeirri reglu á þessa útreikninga, að litlir flokkar fengju meiri hlunnindi en þeim ber, þá er ég alls ekki viss um, að Alþfl. hefði grætt á því. Ég er þvert á móti sannfærður um hið gagnstæða. Auðvitað á það fyrir Alþfl. að liggja — og fyrr en varir — að verða stærsti flokkur þingsins. Það er ekki hægt að vitna í neinar bækur, sem gera það sérstaklega ólíklegt, heldur hníga að því öll rök. Því ætti ekki alþýða þessa lands að komast að sömu niðurstöðu um það, hvernig henni sé bezt að skipa sínum málum eins og alþýða manna í nágrannalöndunum, sem er henni skyldust að þjóðerni, menningu og hugsunarhætti?