07.12.1933
Neðri deild: 28. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 284 í B-deild Alþingistíðinda. (253)
2. mál, kosningar til Alþingis
Hannes Jónsson [óyfirl]:
Ég skal í fullri vinsemd ræða við hv. þm. N.-Ísf. um reikningskekkjuna, sem fram kom hjá honum áðan. Í síðustu kosningum fékk Framsfl. 14 þm. kosna. Það eru engar líkur til. að hann fái þingsæti hér í Rvík mest, enda mun hv. þm. ekki hafa reiknað með því. (VJ: Ég reiknaði e. t. v. með því, að Vestur-Húnavatnssýsla tapaðist næst). Hv. þm. reiknar með þeim tölum, sem eru í Hagtíðindunum nú; hann getur ekki reiknað eftir því, hvernig þau líta út næst. Hann viðurkenndi, að hann hefði gleymt því, að einn þm., sem hann taldi með Framsfl., bauð sig fram utan flokka. Við því er ekkert að segja, en hv. þm. sagði, að þetta gerði svo lítið til af því þá væru heldur ekki hans atkv. talin með atkv. flokksins. Þetta er dálítið einkennileg niðurstaða, því einmitt af því atkv. þessa þm. eru ekki talin með atkv. flokksins, kemur vitleysan út. Hv. þm. deilir með þeirri þm.tölu, sem átt hefði við, ef umræddur þm. hefði verið í flokknum, og hin vitlausa útkoma er því bein afleiðing af því að atkv. hans eru ekki líka talin með, sem hv. þm. segir, að geri ekkert til.
Þá vildi hv. þm. halda því fram viðvíkjandi kosningunni í Strandasýslu, að litlar líkur væru til, að margir hefðu greitt atkv., þó kosning hefði farið fram, þar sem ekki var nema einn frambjóðandi. En undir slíkum kringumstæðum kjósa menn bara miklu frekar, þegar hið nýja skipulag er komið á. Það liggur í því, að enginn flokkur veit fyrirfram, hvort hann kemur til greina við úthlutun uppbótarsæta eða ekki, og þess vegna er keppikefli fyrir flokkana að fá alstaðar öll atkv. fram, sem hugsanlegt er að ná í, hvort sem keppa þarf um þingsæti viðkomandi kjördæmis eða ekki. Þess vegna er það fjarstæða hjá hv. þm., að ef ekki er stillt á móti frambjóðendum einhvers flokks í kjördæmum, þá komi ekki hans atkv. þar fram. Hann mundi auðvitað setja himin og jörð í hreyfingu til þess að fá atkv. fram, þó ekki væri til annars en að hinir flokkarnir fengju síður notið allra uppbótarsætanna. Ræða hv. þm. N.-Ísf. var þannig rökvillur, enda vill oftast verða svo, þegar menn leggja út á þá hálu braut að verja vitleysur, sem þeim hefir orðið á að bera fram, að síðari vitleysan verður verri en hin fyrri.