08.12.1933
Efri deild: 29. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 291 í B-deild Alþingistíðinda. (262)
2. mál, kosningar til Alþingis
Ingvar Pálmason:
Hv. 1. landsk. skýrir rétt frá meðferð þessa máls í stjskrn., en það hefir tekizt svo til síðan n. hélt fund um málið, að meiri hl. n. hefir ráðizt í að flytja nokkrar brtt. við frv. til lagfæringar. Hafa stjórnarskrárnefndir beggja deilda átt samtal um þetta, og eru sumar brtt. fluttar samkv. ósk stjskrn. hv. Nd.
Það er rétt hjá hv. 1. landsk., að meiri hl. stjskrn. þessarar d. mun vera óánægður með frv. eins og það er nú, en eftir það, að n. hefir gengið úr skugga um, að breyt. þær, sem þessi hv. d. helzt mundi kjósa að gera, mundu alls ekki ná samþykki í sameinuðu þingi, taldi n. ekki rétt að bera fram till. um efnisbreyt. á frv., sem aðeins hefðu orðið til þess að tefja þingið, þar sem fullvíst var, að þær breyt. hefðu ekki náð samþykki sameinaðs Alþingis. Hinsvegar höfum við leyft okkur að flytja till. um nokkrar smáorðabreyt. til frekari lagfæringar á frv., sem við vitum, að eru í samræmi við vilja meiri hl. Alþingis. Meiri hl. n. þykir ekki rétt, að þessi hv. d. skiljist svo við þetta mál, að láta hjá líða að gera þessar breyt., þar sem vitanlegt er, að þær muni ekki tefja afgr. málsins. Ég sé ekki ástæðu til þess að fjölyrða um þessar brtt. hverja fyrir sig; þær eru að dómi meiri hl. stjskrn. og sömuleiðis meiri hl. sömu n. í hv. Nd. aðeins leiðréttingar. Þó ósamkomulag nokkurt hafi orðið milli deildanna út af þessu frv., þá teljum við ekki rétt fyrir þá sök að afgreiða það með vansmiðum, sem hægt er að komast hjá. Það er orðið ljóst af atkvgr. í hv. Nd., að þau efnisatriði í frv., sem deildirnar greinir á um, fást ekki samþ. í sameinuðu þingi eins og þessi hv. d. mundi óska.
Ég sé svo ekki ástæðu til að fara fleiri orðum um brtt. Ég fullyrði, að þær eru aðeins leiðréttingar. Hinsvegar skal ég alls ekki taka fyrir það, að eitthvað kunni enn að vera af göllum á frv. N. hafði ekki þann tíma til umráða sem skyldi, til þess að geta athugað frv. eins og æskilegt hefði verið, en aftur á móti hefir stjskrn. Nd. athugað frv. nokkuð líka þessa dagana, svo ég hygg, að ekki geti verið að ræða um mikið ósamræmi milli einstakra greina.