08.12.1933
Efri deild: 29. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 301 í B-deild Alþingistíðinda. (272)
2. mál, kosningar til Alþingis
0272Eiríkur Einarsson:
Eftir að lagafrv. þetta fór frá þessari d. til einnar umr. í Nd., hefir ákvæðum þess um það, hvernig ákveða skyldi afstöðu frambjóðenda í tvímenningskjördæmum með tilliti til uppbótarþingsæta verið breytt nokkuð í Nd. að orðalagi til. í lagagr. þeirri, er hér kemur til greina, stendur nú, að talin skuli saman persónuleg atkv. frambjóðenda í tvímenningskjördæmum, án þess að skilgreint sé, hvað skuli teljast persónuleg atkv., hvort það séu þau atkv., þar sem aðeins einn frambjóðandi er kosinn á sama seðli, eða þar sem tveir eru kosnir. Geri ég ákveðið ráð fyrir, að átt sé við, að persónuleg atkv. séu öll þau atkv., sem frambjóðandi hlýtur, hvort sem hann er kosinn einn á seðli eða ásamt öðrum. Enda eru engin undantekningarákvæði á gr., er gefi annað í skyn. Vegna þessarar orðalagsbreytingar, er veldur nokkurri ónákvæmni, vil ég láta þessa getið, og ef því verður ekki mótmælt með rökum, þá skoða ég það öruggt, að hér sé ekki um að villast. (JBald: Því er þegar mótmælt, skilningur hv. þm. á þessu atriði er algerlega rangur).