25.11.1933
Neðri deild: 19. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 308 í B-deild Alþingistíðinda. (293)
3. mál, þingsköp Alþingis
Frsm. (Bergur Jónsson):
N. ákvað í fyrstu, þegar frv. kom til hennar, að afgr. það án breyt. til d., og lagði hún til, að það yrði samþ. óbreytt, til þess að flýta afgreiðslu málsins, eins og annara mála, sem fyrir þinginu liggja. En síðar kom hv. 2. þm. N.-M. með brtt. við frv., og auk þess var n. bent á, að aðra breyt. þyrfti að gera á þingsköpunum, sem ekkert er um í frv. N. ber þess vegna fram 2 brtt. og 1 vatill.
Hin fyrsta er við 4. gr. og gengur út á það, að fella niður orðin: „og skal ritarinn vera framsögumaður“. Og í öðru lagi gengur þessi brtt. út á það, að breyta 10. mgr. sömu gr. þannig, að í staðinn fyrir orðin „Fastanefndir“ í upphafi gr. komi: Nefndir.
Það ákvæði hefir verið í þingsköpum frá byrjun, að ritarar lausanefnda hafa verið sjálfkjörnir framsögumenn. Þessu ákvæði hefir alls ekki verið framfylgt, að undanteknu einu sinni, að ég held. Með tilliti til þess finnst mér það mjög óviðkunnanlegt, að haldið sé við ákvæði, sem ekkert gildi hefir í framkvæmdinni. Þetta skiptir kannske ekki miklu máli, en fyrst þessu ákvæði hefir verið traðkað, þá leggjum við til, að um lausanefndir gildi hið sama og um fastanefndir í þessu efni, að n. kjósi frsm. hver fyrir sig í hverju máli.
2. brtt. er fram komin eftir bendingum frá skrifstofustjóra Alþ. Hann benti á það, að vegna þess, hve þm. fjölgar mikið á næsta ári, ef þörf verður á að skipa mönnum í flest eða öll uppbótarsætin, þá verði svo þröngt um hv. þm. í þessum sal, sem við sitjum i, að mjög torvelt verði að framkvæma þá fyrirskipun þingskapa, að hver þm. tali úr sæti sínu. Þess vegna gengur brtt. þessi í þá átt, að veita forsetum leyfi til að ákveða að hafa ræðustóla í þingsölunum og að þm. megi tala þaðan, ef þeir óska þess.
Þá hefir hv. 2. þm. N.-M. borið fram 3 brtt. á þskj. 95. N. hefir ekki tekið sameiginlega afstöðu til þeirra. Ég mun fyrir mitt leyti ekki fylgja fyrstu brtt. Þar er gert ráð fyrir, að mál, sem lögð hafi verið fyrir síðasta þing og af einhverjum ástæðum ekki fengið fulla afgreiðslu, en hafi verið komin rétt að lokum, að þau megi taka fyrir á næsta þingi í sama ástandi eins og síðasta þing skildi við þau, eða réttara sagt, að sú meðferð, sem síðasta þing hafði á málinu, verði látin gilda á hinu nýbyrjaða þingi, að svo miklu leyti sem síðasta þing var komið áleiðis með afgreiðslu málsins, og málið tekið fyrir á því stigi, þar sem síðasta þing skildi við það. Og þetta á samkv. till. hv. þm. að gilda, ef þingið samþ. það á lögmætum fundi.
Þetta getur valdið flaustri á afgreiðslu mála. Það getur verið um þau mál að ræða í þessu sambandi, sem ekki hafa átt eftir að ganga í gegnum nema eina umr. á síðasta þingi, og virðist mér, að þá ætti að vera nóg að hafa eina umr. um málið á þessu næsta þingi eftir að málið hefir gengið í gegnum margar umr. á síðasta þingi. Virðist mér þessi aðferð heppilegri um afgreiðslu mála.
Aftur á móti býst ég við, að ég geti gengið inn á hinar brtt. Þar segir svo: „Atkvæðisbær telst þm., nema forseti eða þd. hafi tekið gild rök hans fyrir því, að greiða ekki atkv., eða hann sé óatkvæðisbær samkv. síðustu mgr. þessarar gr“.
Ég býst við, að tilefni þessarar brtt. sé deila, sem kom fyrir á næstsíðasta eða síðasta þingi um þingsköp Alþ., þar sem þm. var óatkvæðisbær.
Þá er annað ákvæði í brtt., um það, að ef rök þm. séu metin ógild, þá teljist atkv. hans með meiri hl. Ég býst við, að þetta sé gott ráð til þess að fá menn til að greiða atkv. Það er ekkert á móti því, að menn hafi það aðhald, sem geri þeim örðugt að komast undan því að taka afstöðu til mála annaðhvort með eða móti, hvort sem þau eru mikilvæg eða ekki.