25.11.1933
Neðri deild: 19. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 309 í B-deild Alþingistíðinda. (294)
3. mál, þingsköp Alþingis
Halldór Stefánsson:
Ég ætla ekki að hefja neina almenna umr. um þingsköp eða frv. og brtt. við það, en aðeins halda mér að því að gera grein fyrir brtt. mínum á þskj. 95.
Hv. frsm. n. hefir nú minnzt á þessar till. og getið þess, að n. sé um þær óbundin. Að sínu leyti mælti hv. frsm. með tveim síðari brtt., en á móti hinni fyrstu.
Fyrsta till., við 5. gr. frv., er um að gera viðbót við þingsköpin, þar sem heimilað sé, að með samþykki meiri hl. atkv. á lögmætum þingfundi megi taka upp til flutnings óafgr. frv. frá næsta þingi á undan á því stigi, sem frv. var, er því þingi lauk, enda hafi ekki farið fram almennar alþingiskosningar á milli þinganna.
Meginástæðan fyrir þessari till. er sparnaðarviðleitni. Þingheimur kannast við, að á hverju þingi fer það svo, að þingi er slitið áður en gengið er frá fullnaðarafgreiðslu fjölda mála, sem fyrir því hafa legið og auðvitað eru á ýmsum stigum þegar þingi er slitið. Ef á meðal þessara mála eru lífvænleg og réttmæt mál, þá eru þau jafnan vakin upp á næsta þingi eða næstu þingum. Þarf þá samkvæmt þingsköpum, eins og þau eru nú, að taka málið fyrir við 6–9 umr. Og það er sýnilega mjög mikill ósparnaður í því að þurfa að endurtaka aftur það, sem fram hefir farið um málið á fyrri þingum, því oftast er ekki líklegt, að fram komi neinar nýjar ástæður sem rök í málinu. Til þessarar endurtekningar þarf að verja miklum tíma af þinginu og miklu fé til endurprentunar allra þeirra ástæðna, sem fyrir málunum eru færðar.
Hv. frsm. n. mælti alleindregið á móti þessari brtt. Skal ég ekki endurtaka rök hans, en ég vil aftur á móti benda á, að það eru eðlilegar og allverulegar takmarkanir á því, að þetta megi gera, sem ég legg til, í brtt. minni, að heimilað verði. Þær eru þrjár, þessar takmarkanir.
Hin fyrsta er sú, að þetta gildir aðeins um mál frá næsta þingi á undan. Hin önnur, að ekki hafi fram farið almennar alþingiskosningar á milli þinganna. Og þriðja takmörkunin er sú, að þetta megi ekki gera, nema með samþ. meiri hl. á lögmætum þingfundi. Þess vegna geri ég ekki ráð fyrir því, að mjög mikil hætta sé á því, að flaustursverk þurfi af því að stafa, þó að mál séu á seinni stigum sínum tekin þannig fyrir, þegar þau hafa komizt svo langt á síðasta þingi, að lítið vantaði á fulla afgreiðslu á þeim.
Ef því er haldið fram, að mál geti verið svo lauslega athugað á fyrri þingum, að ekki megi við það hlíta, enda þótt þau hafi verið komin á síðari stig afgreiðslunnar, t. d. 3. umr. í síðari deildinni, þá finnst mér það vera nokkur sakarákæra á hendur Alþ. yfirleitt, og ekki á rökum byggð. Og ef svo væri, að málið þætti ekki fullvel undirbúið þá er það einmitt lagt á vald deildarinnar að meta það, enda er þá sú leið til, að vísa málinu til hinnar d. og síðan til Sþ., ef þurfa þykir. Ég get því ekki fallizt á þessar ástæður hv. frsm. á móti brtt. minni. Annars geri ég fyrir mitt leyti þetta engan veginn að neinu kappsmáli. Það verður að fara eftir því, sem menn meta þetta. Ég vil bara benda á það, að það yrði mikils sparnaðar að vænta á fé og tíma, ef þessi tilhögun yrði höfð á afgreiðslu mála á Alþingi.
Þá kem ég að 2. tölul. brtt. minnar, sem er í 2. stafl., a og b, og eru liðirnir sjálfstæðar brtt. hvor um sig. Fyrir það, að hv. frsm. fyrir sitt leyti mælti heldur með þeim, er ég honum þakklátur, og læt ég þess vegna nægja styttra mál um þær en ella.
Stafl. a fer fram á það, að bætt sé við 2. mgr. 44. gr. l. skýringu á því, hvað það er, að teljast atkvæðisbær. Þar segir svo í gildandi 1.: „Engin ályktun er lögmæt, nema meira en helmingur fundarmanna, þeirra, sem atkvæðisbærir eru, greiði atkvæði með henni“. Viðbótin, sem ég geri till. um, er þannig: „Atkvæðisbær telst þm., nema forseti eða þingdeild hafi tekið gild rök hans fyrir því að greiða ekki atkv., eða hann sé óatkvæðisbær samkv. síðustu málsgr. þessarar greinar“. Skýring á því, hvað í því felst að teljast atkvæðisbær, er alveg nauðsynleg.
Menn munu kannast við það, sem hv. frsm. líka vék að, að það hefir verið ágreiningur um það innan þings og misjafn skilningur á því í hvorri þd. fyrir sig, hvaða meiningu bæri að leggja í orðið „atkvæðisbær“. Sá meiningarmunur hefir haft þær afleiðngar, að þetta atriði hefir verið skýrt á mismunandi hátti deildunum, og er það mjög óviðkunnanlegt. Þess vegna þykir mér réttmætt og nauðsynlegt að ákveða nákvæmlega merkingu þessa orðs, hvort sem menn vilja fallast á þá skýringu, sem ég vil gefa á því, eða einhverja aðra. Um það má náttúrlega gera brtt., ef þurfa þykir.
Þá er brtt. í stafl. b. undir sama tölul. Hún er líka sjálfstæð till. og er viðbót við sömu gr., 4. mgr. Þessi mgr. þingskapanna kveður svo á, að ef farið er fram á nafnakall við atkvgr. og þm. greiðir ekki atkv., þá skuli hann leiða rök að því, og að forseti skeri úr, hvort þau rök skuli gild talin, en þm. geti skotið þeim úrskurði undir atkv. deildarinnar eða þingsins.
Nú munu allir þm. kannast við það, að það hefir oft reynzt erfitt að fá þm. til þess að greiða atkv., og það eins þótt nafnakall sé viðhaft. Svo er ákveðið í þingsköpum, að hver þm. sé skyldur til að greiða atkv., nema hann hafi þau forföll eða þær ástæður, að vera ekki atkvæðisbær samkv. ákvæði þingskapanna. Það hefir oft orðið misbrestur á því, að þm. hafi viljað hlíta þessu ákvæði.
Nú eru að vísu í gildandi þingsköpum lögð víti við því að greiða ekki atkv. við nafnakall, sem sé þau, að þm. missi af dagkaupi sínu þann dag. Þetta eru lítil víti, og ekki nema að vonum, að þau reynist ekki nóg, sérstaklega þegar tekið er tillit til þess, að sú venja, eða öllu heldur sú óvenja hefir komizt á, að þessum vítum hefir ekki verið beitt.
Ég geri það að till. minni, að ef þm. greiða ekki atkv. án þess þó að hafa lögmæt forföll, þá skuli atkv. þeirra teljast með atkv. meiri hl. í málinu. Hygg ég, að þetta mundi veita það aðhald, að þm. síður leitast við að koma sér hjá að greiða atkv. heldur en að láta telja sig með meiri hl., sérstaklega þegar þeir væru á móti máli.
Þessi till. mín er ekkert nýtt eða óþekkt hér á Alþ., því að ég hefi í henni mjög þrætt það, sem gilti hér í eldri þingsköpum, næst á undan þeim, sem nú gilda. Og þó að breyt., sem gerð var um þetta, bendi heldur til þess, að menn hafi ekki verið allskostar ánægðir með þingsköpin, eins og þau voru um þetta atriði, þá er ekki ástæða til þess að ætla, að menn kunni ekki að vilja taka þau upp á ný, því að ég hygg réttmætt að álykta, að þau ákvæði, sem nú gilda um þetta efni, séu miklu annmarkameiri en hitt fyrirkomulagið, sem ég fyrir mitt leyti sé ekki sérstaka annmarka á.
Ég vona, að mér hafi tekizt að gera mönnum skiljanlegt, hvað fyrir mér vakir, og bíð svo átekta um það, hvaða undirtektir brtt. mínar fá hjá hv. þm.