25.11.1933
Neðri deild: 19. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 316 í B-deild Alþingistíðinda. (298)

3. mál, þingsköp Alþingis

Halldór Stefánsson:

Það hafa nú sem vonlegt er komið fram allmismunandi skoðanir um brtt. mínar. Hv. þm. Str. taldi réttast, að frv. hefði farið í gegnum deildina óbreytt. Ég get nú ekki fallizt á það fyrir hönd mína né nefndarinnar. Það virðist t. d. vera óhjákvæmilegt að laga það, sem alltaf hefir verið brotið, um framsögumenn nefnda. Nefndirnar í báðum deildum hafa látið í ljós, ef ég man rétt, að frv. þyrfti nánari athugunar við, og þegar þessi játning er fengin, finnst mér, að ekki verði framhjá þeim atriðum gengið, sem um ræðir í brtt. mínum.

Tveir þm. hafa borið fram þær aths., að óskýrt sé orðað um málskot til forseta eða deildar. Eins og hv. þm. Barð hefir sýnt fram á, eru þessar aths. á misskilningi byggðar. Fyrst úrskurðar forseti og síðan deildin, ef úrskurði hans er ekki hlýtt. Þetta er orðað rétt og skýrt í brtt. minni við 4. mgr. 44. gr.

Þetta er því fullljóst. Viðvíkjandi því, hvað „þingmaður“ þýði í þessu sambandi, hvort það sé þingmaður sá, er hlut á að máli, eða hvaða þingmaður sem er, sem skotið getur máli til deildarinnar, skal ég lýsa yfir því, að ég tel það merkja hvaða þingmann sem er.

Hv. 1. þm. Reykv. mælti á móti 1. brtt. minni. Taldi hann það lítið tefja þingstörf, þótt tekin væru upp frá rótum mál frá fyrri þingum, vegna þess að nefndaskipun væri venjulega svipuð ár frá ári og gæti nefndaafgreiðslan verið fljót. Þetta er að vísu rétt, en aðgætandi er, að í þingsköpunum eru frestir ákveðnir um meðferð mála, og svo er hitt, að fyrir hverri nefnd liggur jafnan mikill fjöldi mála, enda hefir orðið sú reyndin á, að jafnan hefir staðið á afgreiðslu mála frá nefndum, þótt afgreiðslan hafi ef til vill gengið fljótt, er röðin var komin að málinu. Brtt. mín verður því til þess, að þing geti orðið miklum mun styttri en nú er, en þó afgr. eins mikið af málum eða meira.

Hv. 1. þm. Reykv. benti á, að greidd atkv. gætu orðið jöfn og þá mætti ekki vita, með hvorum hlutanum ógreiddu atkvæðin ættu að teljast. Eftir ákvæðum þingskapa er slíkt mál fallið, svo að þeir, sem sætu hjá, yrðu þá taldir á móti. Ógreidd atkv. yrðu því ýmist „pósitiv“ eða „negativ“. Þessi ákvæði hafa líka verið í þingsköpum áður, sem lengi giltu. Vitanlega er það sjaldgæft, að málsatriði séu svo ótvíræð, að þau geti ekki orkað tvímælis, en ég tel þingsköpin mundu batna mikið, ef brtt. mínar næðu samþykki.