25.11.1933
Neðri deild: 19. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 318 í B-deild Alþingistíðinda. (300)
3. mál, þingsköp Alþingis
Gísli Sveinsson:
Ég verð að taka undir það með hv. þm. Str., að æskilegt hefði verið, að nefndin hefði haldið sér við sitt fyrra álit og varnað því, að fram kæmu brtt. við þetta frv., sem borið er fram af óumflýjanlegri nauðsyn. Þetta frv. er vel undirbúið, enda er undirbúningurinn auðveldur, þar sem breytingar á þingsköpunum í frv. eru aðeins þær, sem leiðir af stjórnarskrárbreytingunni. Öllum öðrum breyt. var sleppt, þótt fleiri þyrfti endurskoðunar, en gagngerð endurskoðun er sízt áhlaupaverk, því að hvert orð og hver setning í þingsköpum þarf auðvitað að vera svo ljós, að ekki orki tvímælis.
Þegar n. fer inn á það að breyta til, mistekst henni, eftir því sem hv. frsm. sjálfur virtist gefa í skyn. Það er verið að tala um, að hér verði settur upp ræðustóll. Ég skal ekki dæma um það í sambandi við teikningar hv. þm. Str., en mér virðist, að ekki sé þægilegt að koma hér fyrir ræðustól, nema raskist það skipulag, sem hér er. En hv. frsm. sagði, að hér væri einungis stofnað til athugunar af forsetum og svo megi taka ákvarðanir í því máli síðar. En hér stendur, að þegar forsetum þykir haganlegt, þá skuli svo gert. (BJ: Er það ekki að undangenginni rannsókn?). Þar stendur: „Nú þykir forsetum koma í ljós við athugun á breyt. þeim á borða- og sætaskipan í deildum, er fram verða að fara áður en reglulegt Alþ. 1934 kemur saman, að haganlegra verði að setja upp ræðustóla í þingsölunum, og skal þá svo gert“. En það er ekki meiningin, að við viljum, að svo skuli gera. Þeir, sem eiga sæti á þingi, vilja hafa nokkra hlutdeild í því, hvort á að fara að raska til í þingsölunum eða ekki. Hitt er annað mál, hvort forseti athugaði þetta og legði niðurstöðurnar fyrir þingið. En hvað snertir brtt. hv. 2. þm. N.-M., þá held ég, að það hafi ekki tekizt vel, þótt hugsunin sé að ýmsu leyti ljós, sem á bak við liggur. En það nær ekki þeim tilgangi, sem flm. virðist ætlast til, og kemur að sumu leyti í bága við réttan skilning á 44. gr. l. Ég vil láta óumtalaða 1. brtt. hans. Það er álitamál, sem ég tel, að eigi að biða, en ekki flaustrast af með brtt. við frv. um breyt. á þingsköpum. En það er a-liður till., sem tekur svo til, að atkvæðisbær „telst þm., nema forseti eða þd. hafi tekið gild rök hans fyrir því að greiða ekki atkv.“. Það er rétt, að það gæti verið rétt að tiltaka, hvenær þm. er í þessu sambandi atkvæðisbær, en nú hefir hv. þm. lagt til, að forseti eða þd. ákveði, hvort atkvæði hans verði tekið gilt. Hv. þm. virðist eiga við það, sem talað er um í núgildandi 44. gr. 4. mgr. Þar segir, að þegar það komi til að úrskurða um slík mál, eigi að skjóta því til þd., þar sem ekkert annaðhvort eða, hvort forseti eða þd. eigi að úrskurða. Forsetinn á að segja um það sitt álit, og að því loknu má í þessu efni eins og um önnur mál skjóta áliti hans til æðra dóms. Og hinn æðri dómstóll er í þessu tilfelli þingdeildin. Það má skjóta úrskurði forseta til d., en það má aldrei vera annaðhvort eða. Þm. eru nú aldrei sjálfráðir um að velja í milli, eins og þetta orðalag ber með sér. Úr þessu mætti auðvitað bæta, en það er bara orðið of seint nú. Það er augljóst, að einungis sá þm., sem í hlut á, getur skotið úrskurðinum til þd. Það er sambærilegt, að máli er aldrei skotið til æðra dóms af öðrum en hlutaðeigendum. Það getur ekki hver og einn skotið því til æðra dóms. Það er bara í einu tilfelli, sem menn hafa sjálfræði um slíkt, sem sé um kjörskráratriði. Það er tekið nú upp í nýju kosningalögin til þess að gera þau svo rúm sem framast er unnt, að leyfa hverjum kjósanda sem er að kæra, líkt eins og nú er ákveðið við útsvarskærur. En það er ekki málskot, heldur fyrsta kæruatrenna. Ef skilningur sá hefði verið tilætlunin í 44. gr. 4. mgr., að hver þm. gæti þetta, þá hefði það komið fram af orðalaginu. Það er verið að tala um ákveðinn þm. Það er ekki verið að áfrýja neinu almennu þingmáli. Þingmaður getur farið lengra, ef hann er óánægður. Ef n. og hv. 2. þm. N.-M. vilja ekki taka aftur þessar brtt., þá vil ég a. m. k. forma það sem áskorun til þm. að fella brtt., því að það er ógerlegt að samþ. þær eins og þær liggja fyrir, enda liggur við borð, eftir yfirlýsingu allra, sem um málið hafa fjallað, að ath. það nánar á næsta þingi.