25.11.1933
Neðri deild: 19. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 320 í B-deild Alþingistíðinda. (302)

3. mál, þingsköp Alþingis

Halldór Stefánsson:

Ég hefi því miður ekki heyrt allt það, sem fram hefir komið, en mér skildist, að hv. þm. V.-Sk. hefði verið að leggjast á móti brtt. minni og tekið í sama strenginn og aðrir andmælendur. Aðeins eitt atriði í þessu vil ég reyna að leiða andstæðinga mína til skilnings á. Þeir segja, að óskýrt sé orðalag brtt., þar sem stendur „úrskurður forseta eða deildarinnar“. Þetta er algerður misskilningur. Þessi orðun er skýr og eins og hún á að vera. Það er bara af því að hv. þm. vilja gera þetta að álitamáli. Það á að hlíta forsetaúrskurði, þegar þeim úrskurði er ekki áfrýjað, en þegar annaðhvort viðkomandi þm. eða einhver annar þm. vill skjóta úrskurði forseta til d., þá er það deildarúrskurðurinn, sem ræður sem síðasti úrskurður í málinu. Úrskurði forseta á að hlýða, þegar hann er tekinn gildur af d. með því að áfrýja ekki. — Hv. 1. þm. Reykv. talaði svo sem eitthvað hefði verið fellt niður af því, sem nú stendur í þingsköpum, en e. t. v. hefir hann ekki meint það, því að hann las upp setningu úr 44. gr., sem tekur af allan vafa um, að það er ýmist úrskurður forseta eða úrskurður d., sem á að gilda. Ég er hv. 1. þm. Reykv. algerlega sammála um, að það er ekki einkamál viðkomandi þm., hvort úrskurður forseta er tekinn gildur eða ekki. Það hlýtur að vera eftir eðli málsins, að hvaða þm. sem er geti áfrýjað úrskurðinum. Þeir eru aðilar í málinu og njóta því áfrýjunarréttar. Og til þess að taka af allan vafa um það mætti bæta hér inn í: „en hver þm. sem er“, — en til þess að það megi verða, þarf ekki að taka aftur mína brtt., því að málið er hér ekki á seinasta stigi. Og þyki mönnum áfátt orðalaginu, er hægt að koma sér saman um breyt. á því við seinni umr. Sé ég því enga ástæðu til að taka brtt. mína aftur til 3. umr.; það verður að vera á valdi d., hvort hún vill fella þessa till. eða ekki.