30.11.1933
Neðri deild: 23. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 323 í B-deild Alþingistíðinda. (309)
3. mál, þingsköp Alþingis
Frsm. (Jón Baldvinsson):
Þetta frv. var lagt fyrir Ed., og samþ. með nokkrum breyt. til Nd. í þeirri hv. d. hefir það tekið lítilsháttar breyt., og er sú ein efnisbreyt., að forsetum er gefin heimild til þess að koma upp ræðustólum í deildunum. Þetta spursmál er gamalt deiluefni í þinginu, og hefir ekki unnizt tími til að bera það undir n. hér í d., svo að ég tala hér aðeins frá sjálfum mér. En ég er þeirrar skoðunar, að betur fari á því, að þm. gangi til ræðustóls, er þeir tala, heldur en að standa við sæti sín, og mun það sérstaklega koma í ljós þegar þm. fjölgar, svo sem nú er ráð fyrir gert.