13.11.1933
Efri deild: 8. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 327 í B-deild Alþingistíðinda. (317)

4. mál, samkomudag reglulegs Alþingis árið 1934

Frsm. (Pétur Magnússon):

Það getur ekki orkað tvímælis, að einungis fyrir eitt einasta ár gildir ákvæði frv. þessa um samkomudag Alþ., enda hefi ég ekki viljað stíga stærra spor í því efni.

Því hefir verið haldið fram hér í d., að þótt frv. verði samþ. eins orðað og það er, þá sé ekkert því til fyrirstöðu, að kalla megi saman Alþ. fyrr á árinu, að afstöðnum kosningum. Það er rétt, að þetta má eftir frv. En ef ekki verða sérstakar aðkallandi ástæður til þess, álít ég þess ekki beina þörf. En til frambúðar álít ég heppilegast að halda sér að jafnaði við það, að hafa samkomudaginn 15. febr. Skal ég ekki fara mikið út í að rökræða um það, hvort heppilegt sé að hafa þingið að haustinu. Mér virðist þó, að fjárlagaafgreiðsla mundi þá verða að ýmsu leyti léttari heldur en á venjulegum setutíma undanfarinna þinga. Að vísu, þótt komið sé undir áramót, er ekki hægt að sjá nákvæmlega, hvernig ára muni næsta ár. En renna mætti þó talsvert grun í það þá, fremur en fyrr á árinu eða síðari hluta vetrar.

Mikil áherzla var á það lögð af hv. 2. þm. S.-M., að bændur mundu eiga mjög óþægilegt með að vera að heiman í október. Aðrir bændur, sem ég hefi talað við, segja mér aftur á móti hið gagnstæða. Þeir segjast geta um það leyti verið búnir að ljúka haustönnum.

En hér er á eitt að líta. Ef það álízt heppilegra, að þing komi saman 1. okt. heldur en síðari hluta vetrar, að flestu eða öllu leyti öðru en því, sem snertir óþægindi hv. þm. í bændastétt, þá má ekki gera allt of mikið úr þessum óþægindum þessara fáu hv. þm., þótt þau kynnu einhver að vera. Það dugir ekki að horfa í það. Það er ekki eins og það sé bændastéttin öll, sem þurfi að flykkjast til þings.

Það er nú svo á hvaða tíma sem er, að erfitt er fyrir bændur að komast frá búum sínum. Ég álít, að tímabilið frá 1. október til 15. des. sé ekki neitt verri tími en aðrir fyrir bændur í þessu sambandi. Í nóv. eru litlar annir hjá bændum.

Ég get tekið undir margt af því, sem hv. 2. þm. S.-M. sagði um setutíma þingsins. Það er satt, að það hefir miklu meira að segja, að vel sé unnið á þinginu heldur en að spara nokkrar þús. króna. Þó á auðvitað heldur að vinna að því, að þingtíminn verði sem stytztur, svo framarlega sem það þarf ekki að ganga fram fyrir eða hindra afgreiðslu þarflegra mála. Ástæðan fyrir því, að mál dagar uppi, liggur sjaldnast í samkomutíma þingsins, heldur í hinu, að hv. þm. eru ekki reiðubúnir til að taka afstöðu til málanna. Um tvískiptingu þingsins held ég, að reyndin myndi verða sú, að síðara þingið myndi starfa nærri því eins lengi og óskipt þing, og yrði þá vafasamur gróði að því fyrirkomulagi.