22.11.1933
Neðri deild: 16. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 334 í B-deild Alþingistíðinda. (341)

5. mál, verðtollur

Halldór Stefánsson:

Á síðasta þingi voru framlengd verðtollslögin til ársloka 1933. Á sama þingi var verðtollsákvæðunum breytt. Í texta framlengingarlaganna var ekki athugað, að framlengingarákvæðin þurftu að ná einnig til þeirra breyt. Framlengingarlögin voru því ekki fallin til að verða að lögum og voru því ekki lögð fyrir konung til staðfestingar. Í þess stað voru gefin út bráðabirgðal., sem framlengdu — auk eldri lagaákvæða — einnig breyt. þær, sem gerðar voru á síðasta þingi.

Frv., sem hér liggur fyrir, er þannig byggt, að í 1. gr. eru aftur afnumin hin ófullnægjandi framlengingarl. síðasta þings. En í 2. gr. eru framlengingarákvæðin aftur lögfest til ársloka 1934, eins og þau þurfa að vera, þ. e. einnig breyt. síðasta þings.

Ed. er búin að athuga þetta frv. og fallast á það. Má vænta, að enginn ágreiningur geti verið um framlenginguna sjálfa, þó vitanlega geti verið — og sé — ágreiningur um verðtollsákvæðin sjálf.

Meiri hl. fjhn. leggur til, að frv. verði samþ. óbreytt. Einn nm. (HV) var ekki á fundi, þegar málið var afgr. í n., og er mér ókunnugt um afstöðu hans.