23.11.1933
Efri deild: 17. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 343 í B-deild Alþingistíðinda. (372)
7. mál, tolllög
Jón Baldvinsson:
Það er rétt, sem hv. frsm. sagði, að það eru fremur óglögg takmörk milli iðnsúkkulaðis og suðusúkkulaðis, en þó er munur á þessu tvennu. Iðnsúkkulaðið hefir verið notað í sambandi við iðnað, svo sem til kökugerðar og við framleiðslu á konfekti. Það má að vísu segja, að kökugerð sé ekki svo afarnauðsynleg, en mér er þó kunnugt um, að hún lækkar brauðverðið, því nokkur þungi af framleiðslu þess hvílir á kökugerðinni. Og þess ber að gæta, að sé greint á milli framleiðenda í súkkulaðigerð og hinna, sem reka konfektgerð og brauðgerð, þá eru hinir fyrrtöldu miklu færri og virtust því eiga að víkja að svo miklu leyti sem hagsmunir þessara tveggja aðilja rekast á. Ég hefi því borið fram brtt. um það, að á iðnsúkkulaði verði 75 aura tollur, svo sem áður var.