06.12.1933
Neðri deild: 27. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 344 í B-deild Alþingistíðinda. (379)
7. mál, tolllög
Frsm. (Halldór Stefánsson):
Eins og sjá má á nál. á þskj. 307, telur n. öll, að nauðsynlegt sé, að þetta frv. nái fram að ganga á þessu þingi. Þó munu einstakir nm. ekki fallast á öll atriði frv. Engin brtt. hefir þó komið fram, svo að frv. liggur nú fyrir óbreytt. Frv. þetta kemur frá hv. Ed. og var afgr. þaðan í þeirri mynd, sem það liggur fyrir í nú. Annars er þetta frv. aðeins staðfesting á bráðabirgðal., sem gefin hafa verið út vegna ágreinings um það, hvernig skilja beri sum ákvæði tolllaganna. Á frv. var gerð nokkur breyt. í Ed., og að því er n. telur, er sú breyt. til bóta. N. leggur til, að frv. verði samþ. óbreytt, enda er nú svo komið tíma þingsins, að óvíst er, að það næði fram að ganga, ef nú væru gerðar á því breyt.