06.12.1933
Neðri deild: 27. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 345 í B-deild Alþingistíðinda. (382)

7. mál, tolllög

Frsm. (Halldór Stefánsson):

Hv. samnm. minn, 1. þm. Reykv., hefir nú skýrt frá því, að hann og fleiri úr n. mundu bera fram brtt. við frv. Tel ég ekki þörf að fara út í það ágreiningsatriði, sem þar stendur að baki, fyrr en þær brtt. koma fram. Þessi ummæli mín geta líka átt við það, sem hv. þm. Vestm. var að finna að um efnisatriði málsins. Hann bar fram lítilsháttar ásakanir á hendur mér sem frsm., fyrir það, að ég hefði ekki minnzt á erindi það, sem fyrir lá frá iðnaðarframleiðendum. Um það get ég sagt það, að fulltrúar þessara manna hafa einmitt átt í samningum við fjhn. Ed., og eftir því sem ritað er eftir hv. 1. landsk. af skrifurum, þá náði n. í Ed. samkomulagi, eða svo að kalla samkomulagi, við þessa nefnd iðnaðarframleiðenda. Málið liggur þess vegna fyrir nú á þeim samkomulagsgrundvelli, sem hefir orðið milli þessara manna og fjhn. Ed.