14.11.1933
Neðri deild: 8. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 348 í B-deild Alþingistíðinda. (391)
18. mál, Neskaupsstaður síldarbræðslustöðvar
Frsm. (Eysteinn Jónsson):
Ég tel það þegar nokkuð mikil meðmæli með frv., að sjútvn. hefir tekið að sér að flytja þetta mál. Er það komið fram að tilhlutun minni í n., og vildi ég gera grein fyrir því með örfáum orðum til viðbótar því og áréttingar, sem stendur í grg. Læt ég nægja að vera stuttorður, vegna þess að fskj. með grg. er svo ýtarlegt og samið af kunnugustu mönnum.
Það er öllum ljóst, sem til þekkja á Austfjörðum, að þar er mikil þörf síldarbræðslna, af því að það hefir ekki tekizt á undanförnum árum að notfæra sér síldaraflann þar. Bræðslur hefir vantað. Austfirðingar stunda síldveiði á litlum bátum. Má því gera ráð fyrir, að bræðslurnar þar verði að vera smærri og fleiri en annarsstaðar á landinu. Þessir smáu bátar geta ekki notað bræðslu, sem er mjög langt frá aflastöðvum. Þess vegna er gert ráð fyrir, að bræðslustöðin í Neskaupstað verði lítil og aðallega ætluð til að taka á móti síld, sem veiðist rétt í grenndinni, á næsta firði við, en þó aðallega á Norðfjarðarflóa og í Mjóafirði.
Nú vill svo til, að Neskaupstaður á fiskimjölsverksmiðju, og er hægt að byggja þessa bræðslu mjög ódýra í sambandi við hana, af því að hægt er að nota að verulegu leyti sömu vélar og notaðar eru til vinnslu beinanna í fóðurmjöl. Er því þar sérstaklega góð aðstaða til þess að gera tilraun með rekstur síldarbræðslu á Austfjörðum.
Í fskj. er greint, að kostnaður sé áætlaður 70 þús. kr. Þessi áætlun er að miklu leyti byggð á tilboði, sem nú þegar liggur fyrir frá norskri verksmiðju um hluta af vélunum, og að öðru leyti á áætlun sérfróðra manna, svo að gera má ráð fyrir, að hún sé mjög nákvæmlega úr garði gerð. Ég hefi hér með höndum rekstraráætlun fyrir þessa verksmiðju, þar sem sýnt er fram á, að mjög sterkar líkur séu fyrir því, að sökum hins lága stofnkostnaðar geti þetta fyrirtæki skilað mönnum þar eystra sæmilegu verði fyrir það hráefni, sem þar er lagt inn, m. ö. o., að þetta fyrirtæki ætti að geta orðið fiskimönnum að góðu liði og borið sig samt. Nú þykja engar líkur til, að Neskaupstaður geti útvegað lán til þess að koma þessu fyrirtæki upp með öðru móti en að ríkið ábyrgist.
Ég vænti þess, að þessi fáu orð mín um ástæður fyrir því, að hafizt er handa um þetta mál, ásamt grg., sem fylgir frv., sannfæri hv. þdm. um, að full nauðsyn er á því, að þetta fyrirtæki komist upp, og að líkur séu til, að það verði mönnum að verulegu gagni. Er þá eðlilegt, þegar málið liggur þannig fyrir, að ríkið hlaupi undir bagga og ábyrgist lán. Og þar sem fjárhagsáhætta er mjög lítil, þá þykist ég því fremur mega vænta góðra undirtekta. Nauðsynin er mikil, en áhætta ríkissjóðs mjög lítil.
Hv. þdm. mun reka minni til, að á síðasta þingi var afgr. ábyrgðarheimild fyrir síldarbræðslustöð á Seyðisfirði. Sumum kynni e. t. v. að virðast, að hér eigi að koma í veg fyrir, að sú stöð verði byggð, eða að keppa við þá væntanlegu stöð. En því er ekki þannig varið. Bræðslan á Seyðisfirði er áformuð miklu stærri en þessi, og rekstur hennar á að byggjast að verulegu leyti á veiði stórra skipa. En í Neskaupstað á hún að vera mjög smá og miðuð við að taka af smáum skipum, sem sækja stutt. Þess vegna verð ég að líta svo á, að þetta fyrirtæki komi ekki í bága við Seyðisfjarðarbræðsluna. Þeir smáu bátar, sem leggja í bræðslu á Norðfirði, mundu aldrei koma sinni síld í Seyðisfjarðarbræðsluna, — eða svo virðist þeim, sem kunnugastir eru. Auk þess virðist mér, að hér sé tækifæri til þess að gera mjög ódýra tilraun til að komast eftir, hvernig bezt verði komið fyrir síldarbræðslumálum á Austfjörðum. En það er, eins og ég tók fram, álit ýmissa kunnugra manna, að þeim verði bezt fyrir komið með smáum bræðslum, af því að síldarskipin eru svo smá og eiga erfitt með að fara langt með aflann.
Ég óska eftir, að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr.