14.11.1933
Neðri deild: 8. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 350 í B-deild Alþingistíðinda. (393)

18. mál, Neskaupsstaður síldarbræðslustöðvar

Haraldur Guðmundsson [óyfirl.]:

Þetta frv. er komið frá sjútvn., enda heyrðist mér á hv. frsm., að hann gerði ekki ráð fyrir, að það færi til n.

Ég vil benda á, að hér er gert ráð fyrir að veita heimild með nokkuð öðrum hætti en er í fjárlagaheimild, sem heimilar stj. að ganga í ábyrgð fyrir Seyðisfjarðarkaupstað. Þar er tiltekið, að ábyrgðin megi ekki fara fram úr 90% af upphæðinni, 10% verði að koma annarsstaðar frá. Ennfremur er settur sem trygging 1. veðréttur í eignunum og ábyrgð Seyðisfjarðarkaupstaðar. Í frv. því, sem hér liggur fyrir, er ekkert slíkt tiltekið. Ábyrgðin er engum skilyrðum bundin, og ekki sést, að ætlazt sé til að fá veðrétt í eignunum. Enda hygg ég nokkur tormerki vera á því, þar eð það mun nú þegar hvíla allhár 1. veðréttur á eignum þeim, sem eru óskiptanlegar frá síldarverksmiðjunni í heild.

Mér þótti rétt að benda á þetta strax við 1. umr. Það er leitt, að hæstv. fjmrh. skuli ekki vera viðstaddur; hefði ég viljað beina til hans þeirri fyrirspurn, hvort hann liti ekki svo á, að sjálfsagt væri, að heimildin frá í fyrra gengi fyrir, þótt þessi verði samþ., ef til þess kæmi, að frá báðum stöðum yrði óskað eftir ábyrgðinni á sama tíma. Ég verð því að ganga út frá því sem sjálfsögðu, að öðrum kosti teldi ég mjög misráðið að hraða afgreiðslu þessa máls nú.

Ég get fallizt á það, sem hv. frsm. sagði, að það sé að ýmsu leyti hentugt að byggja þarna litla verksmiðju, vegna þess hve það kosti lítið. Hinsvegar tel ég ekki rétt, að yfirleitt sé hentugra á Austfjörðum að hafa síldarbræðslustöðvar smáar. Slíkar verksmiðjur verða hvarvetna ákaflega miklu dýrari að tiltölu. Þarna á Norðfirði stendur sérstaklega á, þar sem hægt er að sameina hana við síldarmjölsverksmiðjuna, sem til er.

Ég vil að lokum bæta því við, að ef þetta frv. gengur fram, þá tel ég ekki verða hjá því komizt, vegna þeirrar reglu, sem fylgt er á þingi um veitingu heimilda fyrir ábyrgðum, að gera veðsetningu eignanna að skilyrði fyrir ábyrgðinni.