14.11.1933
Neðri deild: 8. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 351 í B-deild Alþingistíðinda. (394)
18. mál, Neskaupsstaður síldarbræðslustöðvar
Frsm. (Eysteinn Jónsson):
Örfá orð út af ræðu hv. þm. Seyðf. Hann sagði, að Seyðisfjörður mundi þurfa sjálfur að leggja fram 10% af stofnkostnaði Seyðisfjarðarstöðvarinnar. Það er rétt. En það er gert ráð fyrir því í þessu frv., að ríkissjóður ábyrgist 70 þús. krónur, sem er allur stofnkostnaður stöðvarinnar. En ég vil benda á, að það stendur nokkuð öðruvísi á hér, vegna þess, að þessi bræðsla er sett í samband við verksmiðju, sem Neskaupstaður á fyrir, og má því líta svo á, að í því felist allmikið framlag frá Neskaupstað: afnot þeirra véla, sem fiskimjölsverksmiðjan á nú þegar. Er þetta því að öllu leyti sambærilegt, og finnst mér ekki ósanngjarnt, að undir þessum sérstöku kringumstæðum sé gert ráð fyrir að öll upphæðin sé ábyrgzt.
Viðvíkjandi ábyrgð kaupstaðarins sem skilyrði fyrir ábyrgð ríkisins, skilst mér, að ábyrgð Neskaupstaðar hljóti að koma til af sjálfu sér, vegna þess að hann á þessa verksmiðju, en í heimildinni fyrir Seyðisfjarðarkaupstað er gert ráð fyrir, að verksmiðjan verði reist af einkafyrirtæki og því bæjarábyrgð áskilin.
Rétt er það hjá hv. þm., að hér er ekkert tekið fram um veð í eigninni. En þetta er heimild fyrir ríkisstjórnina til þess að ábyrgjast lánið, og verður að sjálfsögðu að líta svo á, að sá ráðh., sem um þetta fjallar, taki veð í eigninni, eftir því sem hægt er að koma slíku við. Ef svo er, sem ég held, að sé rétt hjá hv. þm., að eitthvað hvíli á með fyrsta veðrétti í fiskimjölsverksmiðjunni, þá verður veðréttur ríkissjóðs að koma þar á eftir. En ég held, að það sé alveg óhætt að ganga frá frv. eins og það er og treysti því, að ráðh. útvegi allra bezta veðrétt fáanlegan fyrir ábyrgð ríkissjóðs.
Viðvíkjandi því, að Seyðisfjörður sitji fyrir, þá sé ég ekkert því til fyrirstöðu, að þessar framkvæmdir geti gerzt í sama mund. Eftir því sem kunnugir sjómenn tjá mér, þá eru mest líkindi til, að bræðslan í Neskaupstað fengi síld, sem ekki yrði veidd fyrir Seyðisfjarðarbræðsluna.
Hv. þm. kvað ekki hentugt að hafa verksmiðjur smáar. Þó verður svo að vera á Austfjörðum, vegna þess hve bátar eru smáir. Annaðhvort verður bræðsluveiði engin eða það verður að vera stutt til bræðslu af veiðistöðvum, og þá geta þær ekki verið stórar.