18.11.1933
Neðri deild: 13. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 353 í B-deild Alþingistíðinda. (399)

18. mál, Neskaupsstaður síldarbræðslustöðvar

Þorsteinn Þorsteinsson [óyfirl.]:

Við höfum tveir dm. borið fram brtt. við frv. það, sem nú er hér til umr. Ástæðan fyrir till. er sú, að okkur flm. þykir það rétt og sjálfsagt, að þegar ríkið verður að ganga í ábyrgð, hvort heldur það er fyrir einstaklinga eða aðra, þá verði þess jafnan gætt, að sá aðili, sem gengið er í ábyrgð fyrir, leggi fram svo örugga tryggingu sem við verður komið, svo að ríkið hafi enga eða sem allra minnsta áhættu af ábyrgðum sínum. Þótt ríkisstj. muni e. t. v. í mörgum tilfellum krefjast þess af eigin hvötum, að tryggingar verði settar fyrir ábyrgðum ríkissjóðs, þá er það samt fullkomið aðhald fyrir hana, að um þetta atriði liggi fyrir skýr fyrirmæli frá Alþingi, enda nauðsyn á, að þingið gangi það rækilega frá fyrirmælum sínum, að ekki þurfi að eiga það eingöngu undir minni eða athugun stj., að ríkið rati út í ótryggar ábyrgðir, er það síðar verður að greiða, en þegar það svo krefst endurgreiðslu hjá hinum eiginlega skuldunaut, fyrirfinnst þar ekkert fémætt.

Það verður að vísu svo, að tryggingar, sem ríkið fær fyrir ábyrgðum sínum, reynast oft ekki eins verðmiklar eins og ráð er fyrir gert, en alltaf ættu þær að vera nokkurs virði.

Eftir því sem mér hefir verið tjáð, er hvorki tregða á að setja tryggingu frá Neskaupstað né að kaupstaðinn skorti tryggingu. En þrátt fyrir það má ekki hér undan falla sú sjálfsagða regla, að í umboði því, er Alþ. veitir ríkisstj. til þess að binda ríkið ábyrgðum, sé tekið fram um það, að skuldari setji tryggingu, ef til þess er ætlazt á annað borð.