17.11.1933
Neðri deild: 12. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 550 í B-deild Alþingistíðinda. (40)
Lausnarbeiðni stjórnarinnar
Héðinn Valdimarsson:
Það hafa staðið fregnir í stjórnarblöðunum, „Nýja dagblaðinu“ og „Heimdalli“, að stjórnin hefði sagt af sér, áður en hæstv. forsrh. skýrði frá því. En blöðin skýrðu frá þessu á tvo vegu. Annað segir, að forsrh. hafi skýrt frá því í skeyti til konungs, að Framsfl. hafi óskað þess, að stj. segði af sér, en hitt segir, að meiri hl. flokksins hafi óskað þess. Nú gerir þetta dálítinn mun, því að það verður ekki séð, hvort stj. hafi traust á bak við sig eða ekki.
Vildi ég því óska, að hann læsi skeyti það, sem hann sendi konungi, eða gæfi þingi aðgang að því.