22.11.1933
Neðri deild: 16. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 367 í B-deild Alþingistíðinda. (435)

22. mál, lögreglustjóri í Bolungarvík

Frsm. (Vilmundur Jónsson):

Meiri hl. allshn. leggur til, að þetta frv. verði samþ. með dálítilli breyt., sem sé þeirri, að aftan af 2. gr. falli ákvæðin um, að hinn væntanlegi lögreglustjóri verði sjálfkjörinn hreppsnefndarmaður með atkvæðisrétti í hreppsnefnd. Það kemur í bága við réttar lýðræðisreglur, og það sem tíðkast nú. Hreppstjórar eru ekki sjálfkjörnir í hreppsnefndir og bæjarstjórar hafa ekki atkvæðisrétt í bæjarstjórninni nema þeir séu sérstaklega kosnir. Þótt tveir nm. hafi skrifað undir nál. með fyrirvara, ber ekki að skilja það svo, sem þeir séu frv. andvígir. Þeir vilja aðeins ekki, að það fái afgreiðslu á þessu þingi. Það má vera rétt, að þetta frv. hefði ekki átt að afgreiðast á þessu þingi; það hefði sem sé átt að afgreiða það á seinasta þingi, og ástæðan til, að það varð ekki, var aðeins sú, hve seint málið var til meðferðar.

Það horfir til vandræða á þessum stað að fá mann til að gegna oddvitastörfmn eins og því starfi er nú fyrir komið. Síðan 1. umr. fór fram hefi ég fengið skeyti með mjög ákveðnum óskum um samþ. frumvarpsins frá sýslunefndinni í N.-Ísafjarðarsýslu og meðmælum sýslumannsins, sem einnig er bæjarfógeti á Ísafirði. Telja þessir aðilar málið enga bið þola og minna á, að ríkissjóður eigi þarna einnig hagsmuna að gæta, því að árlegar ríkissjóðstekjur, sem innheimta þarf í Bolungavík, nema tugum þúsunda. Útgjöldin, sem leggjast á ríkissjóð við samþ. frv., eru hverfandi lítil, og þar sem einungis getur orðið um það að ræða, að málinu verði frestað um eitt ár, þá vona ég, að hv. deild láti sig ekki muna um að létta nú þegar þessum vandræðum af Bolvíkingum, úr því að ekki er ágreiningur um, að sjálfsagt sé að gera það.