22.11.1933
Neðri deild: 16. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 368 í B-deild Alþingistíðinda. (437)

22. mál, lögreglustjóri í Bolungarvík

Pétur Ottesen:

Ég þekki það nú frá því sem gerzt hefir á Akranesi, þar sem mjög er orðið mannmargt — um 1300 manns —, að ekki er lengur hægt að fá menn til að gegna oddvita- og hreppstjórastörfum, svo umfangsmikil sem þau eru á slíkum stöðum og með þeim launum, sem fyrir þau störf eru goldin. Því er það svo, þar sem svona stendur á, þó að vísu sé færra fólk í Bolungavík og þörfin því e. t. v. ekki eins brýn, að naumast verður hjá því komizt, að Alþ. sinni þeirri nauðsyn, sem á því er að létta undir með þessum störfum. Ég verð því að viðurkenna þá þörf, sem hér liggur til grundvallar, en nú af brtt., sem fram er komin, vil ég taka það fram, að mér virðist, að í þeim tilfellum, er lögreglustjóri tekur að sér að vera oddviti hreppsnefndar, þá samrýmist það illa, nema því aðeins, að hann sé jafnframt hreppsnefndarmaður og að fyrir því sé séð í lögum, að svo skuli vera. Þannig er það í lögum um lögreglustjóra á Akranesi, og hefir reynzt vel. Auðvitað er ekki útilokað, að hann sé kosinn í hreppsnefnd, þótt það væri ekki fram tekið í lögum, en þar sem gert er ráð fyrir, að hann sé skyldugur til þess, ef hreppsn. óskar, að gegna oddvitastörfum, þá er eðlilegast, að það sé eins og með lögreglustjórann á Akranesi, að lögákveðið sé, að hann eigi sæti í hreppsn. Oddvitastarfið verður þannig bezt af hendi leyst, að sá maður, sem hefir það með höndum, beri ábyrgð á þeim ráðstöfunum, sem hreppsn. gerir og honum er falið að framkvæma. Ég vil því, að í þessu tilfelli sé eins að farið og með lögreglustjórann á Akranesi, að það sé hreint og beint tekið skýrt fram í lögunum, að jafnframt því, sem hann taki að sér oddvitastörfin, sé hann sjálfkjörinn hreppsn.maður með atkvæðisrétti um öll málefni hreppsins, þau er undir hreppsnefnd heyra. Verði frv. breytt frá því, sem nú er, greiði ég atkv. á móti því, en verði brtt. ekki samþ., greiði ég atkv. með því.