08.12.1933
Efri deild: 29. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 554 í B-deild Alþingistíðinda. (48)

Afgreiðsla þingmála

Magnús Jónsson:

Við getum sjálfsagt geymt okkur að tala um þetta mál þangað til það kemur til umr., og þó það verði ekki nú, þá mun verða tækifæri til þess á öðrum vettvangi. En ég náði tilgangi mínum með þessari fyrirspurn. Hún var aðeins til þess að gera hv. 4. landsk. það skiljanlegt, hvað það getur verið mikið verk að afgr. mál, ef þarf að leita umsagnar margra um það. Þessu máli var vísað til hv. allshn. þann 14. f. m., og hv. 4. landsk. hefir ekki ennþá komið því í verk að skila áliti um það, svo maður sér ekki ennþá, hve mikil framleiðsla það kann að verða hjá þessum hv. þm. á endanum.

Á 12. fundi í Sþ., 8. des., utan dagskrár, mælti