27.11.1933
Efri deild: 20. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 378 í B-deild Alþingistíðinda. (488)

14. mál, ríkisborgararéttur

Pétur Magnússon:

Um það leyti sem mál þetta var afgr. frá Nd. kom til mín umsókn frá manni hér í Reykjavík, Harald Faaberg, skipamiðlara, fæddum í Noregi. Hann hefir dvalið hér í 10 ár, skilur vel íslenzku og talar hana sæmilega. Með umsókninni fylgdu vottorð frá lögreglustjóra og borgarstjóra, eins og til er skilið. Hann hefir rekið atvinnu hér allan tímann, er kvæntur íslenzkri konu og uppfyllir öll þau skilyrði, sem þarf til þess að mönnum sé veittur borgararéttur. Ég hefi ekki haft tíma til þess að bera brtt. undir hv. samnm. mína í allshn., en hygg, að þeir hafi ekkert við hana að athuga. Ég mun einnig bera fram brtt. þess efnis, að tillgr. verði orðuð um. Skrifstofustjóri Alþ. hefir bent mér á það, að betur færi á því í erlendum nöfnum að hafa ættarnafnið á undan, og raða svo nöfnum umsækjenda í stafrófsröð. Sem menn sjá, er þetta aðeins formsatriði.