16.11.1933
Efri deild: 11. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 379 í B-deild Alþingistíðinda. (495)

33. mál, Söfnunarsjóður Íslands

Flm. (Björn Kristjánsson):

Þetta litla frv., sem ég hefi leyft mér að flytja hér í þessari hv. d. ásamt tveimur öðrum hv. þm., er svo fábrotið og ljóst, að ég tel ekki þörf á að fara um það mörgum orðum. Ég get eiginlega látið nægja að vísa til grg. frv., því þar er að finna aðalástæðurnar fyrir því, að frv. þetta er hér flutt. Þó vil ég til viðbótar því, sem þar er tekið fram, geta þess, að þegar rætt var í hv. Nd. á síðasta þingi um lækkun vaxta, komu fram allháværar raddir um það, að dráttarvextir þeir, er Söfnunarsjóðurinn tæki, væru óhæfilega háir; voru hv. þm. allir sammála um það, er á það minntust. Því var það, að tveir hv. þm. báru fram frv. um, að hámark dráttarvaxta í bönkunum og öðrum lánsstofnunum skyldi vera 1% á mánuði. Hámark þetta var síðan með brtt. lækkað niður í ¾% og frv. þannig afgr. til hv. Ed., en þar dagaði frv. uppi.

Vegna hinna góðu undirtekta, sem mál þetta fékk hjá hv. Nd. á síðasta þingi, vil ég mega vona, að frv. það, sem hér er borið fram, fái góðar viðtökur. Ég held, að allir hljóti að verða sammála um það, að dráttarvextir í Söfnunarsjóði eru óhæfilega háir, og ég get ekki betur séð en að þeir séu reglulegir okurvextir. Hinsvegar sé ég ekki, að ástæða sé til að íþyngja alveg sérstaklega skuldunautum Söfnunarsjóðs fremur en öðrum, er dráttarvexti verða að greiða, þó þeir vegna greiðsluvandræða geti ekki staðið í skilum. Þó frvgr. verði samþ., má Söfnunarsjóðurinn enn vel við una, því dráttarvextirnir verða þá alltaf þriðjungi hærri en almennir vextir hjá sjóðnum. Mér finnst líka, að svo háir dráttarvextir séu alveg nægileg hegning á þá menn, sem fyrir þeim verða.

Um frv. skal ég svo láta þetta nægja, en þar sem hæstv. atvmrh. er hér staddur í d., langar mig til að beina til hans einni fyrirspurn. í umr. á síðasta þingi í hv. Nd. um almenna vexti í Söfnunarsjóði, en útlánsvextir þar eru 6%, var allmikið um það deilt, hvort ákvæðin frá því frv. um innlánsvexti lánsstofnana ættu að ná til Söfnunarsjóðs, eða hvort sjóðurinn skyldi vera óháður þeim ákvæðum. Kom fram brtt. um, að þau skyldu gilda fyrir Söfnunarsjóð. Hv. þm. Str. færði rök að því, að óþarft væri að veita sjóðnum þá undanþágu, en hæstv. atvmrh. lagði á móti brtt., en lýsti því jafnframt yfir, að stjórn Söfnunarsjóðs hefði í hyggju að lækka innlánsvexti og myndi gera það án þess að um það væru sett sérstök lagaákvæði. Ég man ennfremur, að þáv. hv. þm. N.-Ísf. (JAJ), sem líka talaði gegn brtt., færði m. a. það til, að hann hefði nýlega átt tal við stjórn sjóðsins og að hún hefði þá sagt, að ákveðið væri að lækka innlánsvextina í 5%. Nú vil ég spyrja, hvort þetta hefir verið gert. — Að svo mæltu vona ég, að frv. þessu verði vel tekið í hv. þd. og óska, að því verði að lokinni þessari umræðu vísað til hv. fjhn.