16.11.1933
Efri deild: 11. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 382 í B-deild Alþingistíðinda. (497)

33. mál, Söfnunarsjóður Íslands

Flm. (Björn Kristjánsson):

Ég get alveg fallizt á það hjá hæstv. atvmrh., að ekki sé ástæða til að taka eina stofnun út úr, þegar farið er að gera lagaákvæði um dráttarvexti. Ástæðan fyrir því, að við bárum ekki frv. þetta fram í sama formi og það var í fyrir hv. Nd. á síðasta þingi, var sú, að við litum svo á, að hæstv. ríkisstj. hefði þegar gefið út ákvæði um það, að almennar peningastofnanir mættu ekki taka nema ¾% dráttarvexti, en nú hefir hæstv. atvmrh. upplýst, að veðdeild Landsbankans tekur hærri dráttarvexti. (Atvmrh.: Ég veit ekki betur). Og ég er því hlynntur, að hv. fjhn. taki þetta mál til athugunar á breiðara grundvelli.

Út af þeim orðum, sem féllu hjá hæstv. ráðh. viðvíkjandi almennri vaxtalækkun í Söfnunarsjóði, get ég ekki annað sagt en að ég verði fyrir vonbrigðum yfir því, að því máli er ekki lengra komið. Þegar á það var fallizt á síðasta þingi, að Söfnunarsjóður skyldi ekki vera háður ákvæðunum um hámark innlánsvaxta, þá skildist mér hæstv. atvmrh. lofa því, að útlánsvextir í sjóðnum skyldu verða lækkaðir niður í 5% eins fyrir það. Man ég, að hv. þm. Ak. þakkaði hæstv. ráðh. fyrir það loforð. Ég get ekki fallizt á, að nokkrir teljandi erfiðleikar séu á því fyrir sjóðinn að lækka vexti á miðju ári vegna útreiknings á vöxtunum. Í Söfnunarsjóði munu vera svo langtum færri lán heldur en í Landsbankanum, sem orðið hefir að lækka vexti nú á miðju ári, að það mun varla sambærilegt.

Því miður er hæstv. fjmrh. ekki hér viðstaddur, annars hefði ég gert fyrirspurn til hans um það, hvort ekki væri í ráði að lækka vextina, en það verður að gera, og það þegar í stað. Það virðist engin ástæða til þess, að Söfnunarsjóður taki hærri vexti en aðrar lánsstofnanir, sérstaklega þegar á það er litið, að sjóðurinn hækkaði sína útlánsvexti fyrir nokkrum árum, eins og aðrar lánsstofnanir gerðu þá. Er því vafalaust réttmætt, að hann fylgist með nú, er útlánsvextir almennt lækka.