08.12.1933
Sameinað þing: 12. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 554 í B-deild Alþingistíðinda. (50)

Afgreiðsla þingmála

Jóhann Jósefsson:

Ég og nokkrir aðrir hv. þm. höfum borið fram till. til þál. út af áfengismálinu, sérstaklega með tilliti til þess, að alþm. sé gefinn kostur á að láta í ljós, hve mikils þeir meta þjóðaratkvgr. um þetta sama mál. Sem einn af flm. óska ég þess eindregið, að þetta mál komi undir atkv. áður en þingi er slitið. Ég tel, að Alþingi sé skylt að viðurkenna þjóðarviljann, sem kom fram í atkvgr., og ég álít, að þingið hafi ekki lokið störfum sínum fyrr en þetta er afgr.