23.11.1933
Efri deild: 17. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 386 í B-deild Alþingistíðinda. (503)
33. mál, Söfnunarsjóður Íslands
0503Björn Kristjánsson:
Ég þakka fjhn. fyrir fljóta afgreiðslu og afskipti hennar af þessu máli. Þótt ég hefði að vísu frekar kosið, að hún hefði fallizt á frv. óbreytt, get ég sætt mig við brtt. hennar. Annars get ég ekki betur séð en ¾% á mánuði eða 9% á ári, væru nægilega háir dráttarvextir. En þótt við kysum fremur frv. en brtt. fjhn., viljum við þó ekkert leggja í hættu með því að greiða atkv. gegn þeim. ¾% eru þeir dráttarvextir, sem stj. hefir ákveðið, að Búnaðarbankinn og fleiri lánsstofnanir taki, og finnst okkur flm., að þeir hefðu einnig mátt gilda um Söfnunarsjóð.