02.12.1933
Neðri deild: 24. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 387 í B-deild Alþingistíðinda. (510)
33. mál, Söfnunarsjóður Íslands
Frsm. (Hannes Jónsson) [óyfirl.]:
Hér er aðeins um smámál að ræða. Þetta frv. hefir fengið fljóta afgreiðslu í hv. Ed., og fjhn. þessarar hv. þd. hefir fallizt á öll þau rök, sem þar voru fram færð fyrir nauðsyn þess, og hefir hún einnig fallizt á skilning hv. fjhn. Ed. um framkvæmd laganna. Eins og frv. er orðað, mætti e. t. v. líta svo á, að lækkun dráttarvaxta ætti aðeins að ná til vaxta af þeim lánum, sem hér eftir kunna að verða veitt úr Söfnunarsjóði. En þar sem fjhn. beggja deilda hafa tekið það fram í nál. sínum, að lækkunin nái til dráttarvaxta bæði af eldri og yngri lánum, þá verður það að teljast nægilega skýrt fyrir stofnunina til að fara eftir. Hér er aðeins um að ræða lækkun á feiknaháum dráttarvöxtum, svo háum, að þeir gátu farið upp í 30–40% af lánsupphæðinni á ári. En samkv. þessu frv. eru þeir færðir svo niður, að þeir geta ekki orðið hærri en 12%, og sýnist svo, sem þó séu teknir nægilega háir vextir af lánum fátækra manna, sem eiga erfitt með að standa í skilum á réttum gjalddaga.