17.11.1933
Efri deild: 12. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 402 í B-deild Alþingistíðinda. (580)
10. mál, Kreppulánasjóður
Eiríkur Einarsson:
Brtt. þá á þskj. 49, er ég ber fram, flyt ég af tveimur ástæðum: Þeirri fyrst, sem vitanlega er aðalástæðan, að það er álit mitt, að þá réttarbót, sem hér er farið fram á, beri að gera, og hinni, að beiðni og till. um þetta hafa komið fram frá ýmsum kjósendum mínum. Að vísu hefir það nú verið svo, að nokkurt hik hefir verið á mér um að bera þessar till. fram. Ber þar fyrst og fremst til, að aukaþingi þessu er fyrirhuguð stutt seta. Var því vafasamt, hvort slíku máli bæri að hreyfa. En það hefir gefið mér vind í seglin um að bera mál þetta fram, að ýms önnur mál eru fram komin, sem ekki virðist meiri ástæða til að hreyfa. Auk þess hefir nú í Nd. verið borin fram stórfelld brtt. við þessi sömu l. En þar sem þær brtt. falla ekki saman við það, sem hér er flutt, varð eigi undan því skotizt að bera fram þessar brtt. við l. Það er líka svo, að aldrei er ótímabært að bera fram þau þingmál, sem orðið geta til hagsbóta, svo framarlega sem nokkur von er um, að tími vinnist til að koma þeim fram eða þoka þeim áleiðis. Þá ætti það og að flýta fyrir því, að þetta mál geti gengið fram, að því er ætlað að verða samferða breyt. á l., sem nú er fyrir þingdeildinni og nauðsynlegt er talið, að fái afgreiðslu. og er nú þegar nokkuð komin áleiðis. Þá herðir það enn á nauðsyn þess að flytja málið nú, að kreppulánal. er ætlaður skammur aldur. Nauðsynlegar breyt. þurfa því að koma strax, ef þær eiga að verka. Aðalþing verður ekki haldið fyrr en að hausti, en þá er ætlazt til, að framkvæmd l. verði langt komin.
Eftir þennan formála kem ég svo að sjálfum brtt. Er um tvær aðalbreyt. að ræða. Sú fyrri er, að það skilyrði 1. fyrir lánveitingu úr Kreppulánasjóði, að bændur hafi nægan bústofn, falli niður. Að því álít ég réttarbót. Það skilyrði má ekki ráða því, hvort bóndi telst lántökuhæfur eða ekki. L. hafa það markmið að rétta hag bænda frá því, sem komið er. Þegar svo djörf hugsjón er tekin til framkvæmda, þá má og ber á það að líta, hver dugur er í þeim mönnum, sem hjálpað er, frekar en það, hvort þeir eigi nægan bústofn á þeim tíma, sem hjálpin skal veitt. Svo getur staðið á margra hluta vegna, að bústofninn hafi rýrnað. Framkvæmdir og umbætur á jörðunum hafa getað rýrt bústofninn í bili hjá þeim, sem vilja reynast skilamenn. Og þótt Kreppusjóðsstjórnin kunni að vilja sjá í gegnum fingur við slíka menn, þá er henni þó markaður bás með l. eins og þau eru nú. Framtíðarskilyrði margra slíkra bænda geta og orðið allgóð, t. d. þar, sem börn eru að komast upp og fara að létta undir, enda þótt bóndinn hafi í bili orðið að fækka búfé sínu vegna uppeldis og menningar barnanna. Annað, sem valdið getur rýrnun á bústofni í bili, er veiki í búfénu. Svo er það t. d. sumstaðar nú, þar sem ormaveikin hefir geysað í sauðfénu. Ættu bændur hér frekar að njóta en gjalda slíkra ósjálfráðra óhappa. Hin settu skilyrði lagagr. eru næg, þótt þessum lið sé sleppt, enda er hann ósanngjarn. Þeim bændum ber að hjálpa, sem hafa búrekstur að aðalatvinnuvegi, enda þótt þeir, vegna þess að þeir vildu vera skilamenn eða af ýmsum ástæðum, er nefndar hafa verið, hafi orðið að fækka búfé sínu í bili.
Hitt atriðið í brtt. er frekar formsatriði. Það fer fram á breyt. á því, hvernig fyrir skuli komið auglýsingu til skuldheimtumanna. Það hefir sjálfsagt legið næst gamalli venju að auglýsa hvern og einn, eins og l. ákveða nú. Sú regla að auglýsa í Lögbirtingablaðinu — áður í dagblaði — vegna gjaldþrots eða nauðasamninga var sjálfsögð, þegar einn og einn maður átti í hlut, enda voru þá bú þeirra manna tekin til róttækari meðferðar en gert er ráð fyrir samkv. þessum l. Nú vildi ég, að tekið væri til athugunar, hvort ekki mætti haga þessu öðruvísi og á þann hátt, að Lögbirtingablaðið þyrfti ekki að geyma nöfn þessara manna. Þess ber að gæta, að hugsunarháttur almennings hefir á mörgum sviðum breytzt. T. d. voru fyrrum úrskurðir um flutning fátækra milli sveita birtir í Stjtíð. Nú má segja, að þetta sé annað mál. En ef mannúðarmál nútímans er annað og meira en glamur eitt, því þá ekki að hlífa mönnum við óþarfa sársauka. Og þó till. mínar komi of seint fram, þá ber þó að leiðrétta það, sem leiðrétt verður. Þótt nú umsóknir margra til Kreppulánasjóðs séu komnar á stað, þá er þó enn mikið eftir. A. m. k. er mér kunnugt um, að svo er í Árnessýslu — því miður. Menn hafa hikað við að láta auglýsa sig á þennan hátt. Þá kemur spurningin, hvort sú till., er ég ber fram, er jafnörugg og hin aðferðin, auglýsing einstaklinga. Ég svara þeirri spurningu játandi. Og til öryggis hefi ég leitað álits lögfræðinga, sem mikla reynslu hafa um slík mál, og hafa þeir ekkert það fundið, er lögformlega stríði gegn því, að sú leið sé fær, er brtt. mínar gera ráð fyrir. Till. mín er sú, að allar hreppsn. kveðji til almenns sveitarfundar með a. m. k. 8 daga fyrirvara, og boði á þann fund alla þá, sem ætla að sækja um kreppuhjálp. Á fundinum er samin skrá yfir alla þá, er sækja um kreppulánin og eigi hafa sótt áður eftir hinu eldra fyrirkomulagi. Sú skrá er síðan send til héraðsn., en hún sendir hana, ásamt nauðsynlegum gögnum, stjórn kreppusjóðs. Þegar stjórn kreppusjóðs hefir fengið umsóknirnar í hendur, tekur hún sínar ákvarðanir, svo sem nú er ákveðið. Gefur hún síðan tilkynningu hlutaðeigandi umsækjendum í hinum ákveðnu hreppsfélögum um það, hvort þeir komi til greina, og auglýsir í Lögbirtingabl., að lánbeiðnir séu komnar til Kreppulánasjóðs úr þessu og þessu tiltekna sveitarfélagi.
Ég vildi lengja frestinn, svo að þeir, sem ættu fjárkröfur á hendur lánbeiðendum, gætu gefið sig fram með auknu öryggi að því leyti, og geta þess, að skrá yfir lánbeiðendur lægju frammi hjá stjórn sjóðsins í Reykjavík, héraðsnefnd og oddvita, enda eru í till. mínum ákvæði, er gera það að skyldu að hafa slíkar skrár fyrir hendi. Hvað er þá auðveldara fyrir kröfuhafa en að sjá, hverjir það eru, sem æskja hjálpar úr hinum auglýsta hreppi.
Ég fæ ekki betur séð en að hér sé svo fast um búið, að innköllunin sé alveg eins góð og gild eins og í núgildandi lögum, en hinsvegar er með þessum hætti komizt hjá því að nefna nöfn lánbeiðenda opinberlega. Sú skrá er óþörf í annálasafni þjóðarinnar. Má telja þetta alveg eins lögformlegt og það fyrirkomulag, sem nú tíðkast, enda hefði mér ekki dottið í hug að vilja losa svo um hnútana, að lögin misstu öryggi sitt á nokkurn hátt. Ég álít því réttmætt, að leiðrétting sem þessi komi fram á Alþingi. Ef hugur á að fylgja máli um að hjálpa bændum til þess að verða aftur sterk, frjáls og göfug stétt, þarf að hlera svo metnaðar- og tilfinningamál þeirra, að stéttin finni, að þeir, sem hún felur umboð sitt, skilji hana. Treysti ég svo því, að hv. d. sjái sér fært að samþ. till. mínar.