17.11.1933
Efri deild: 12. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 407 í B-deild Alþingistíðinda. (582)

10. mál, Kreppulánasjóður

Eiríkur Einarsson:

Hv. 3. landsk. mælti á móti till. mínum með almennum orðatiltækjum án þess að gera nokkra verulega tilraun til þess að hrekja einstök atriði. Hann kvað það vera með öllu þýðingarlaust og á engan hátt til bóta að fella niður 2. lið 5. gr., þar sem efni væri hið sama í 6. lið sömu gr. Ef þetta væri rétt, væri þó a. m. k. annar liðurinn óþarfur. En nú er það ekki rétt, að efni beggja þessara liða sé hið sama, og ef 2. liður er lesinn niður í kjölinn, verður hann blátt áfram skoplegur, þar sem talað er um „aðrar tekjuvonir“ bænda almennt. Þetta er í mesta máta undarlega tekið til orða. Liggur langbeinast við að skilja þetta svo, að hér sé átt við þá, sem eiga börn í uppvexti, og þætti mér vænt um, að hv. 3. landsk. vildi upplýsa það, hvort það séu einkum börnin, sem hér sé átt við við þessum „tekjuvonum“ bænda.

Það er alveg rétt, að Kreppulánasjóður á fyrst og fremst að hjálpa til þess, að bændur verði sjálfbjarga, svo að þeim sé ekki hætta búin af gjaldþroti, eftir að þeir hafa fengið lán úr sjóðnum. En tilætlun mín er sú, að liðurinn falli niður vegna þeirra, sem eru að koma upp börnum sínum, hafa orðið fyrir skaða á síðustu árum á bústofni sínum, hafa lagt í byggingarkostnað, eða annað slíkt átt sér stað, svo að bústofn er ekki nægur, en aftur næg ástæða að ætla, að slíkur bóndi eigi viðreisnar von án sérstakra tekjuvona.

Hv. 3. landsk. hefir átt allmikinn þátt í setningu núgildandi laga um Kreppulánasjóð, og er því ef til vill tregari en hann myndi annars vera til að fallast á brtt. mínar. En ég get fullvissað hann um, að betra yrði fyrir hann að vera í stjórn Kreppulánasjóðs, ef 2. liður 5. gr. yrði felldur niður, og vera þar með laus við lögskýringar, sem eru meira en hæpnar.

Ég vil í þessu sambandi benda á bændurna austanfjalls. Þar fara nú jarðnæði batnandi og heyafli vaxandi vegna hinna miklu áveitufyrirtækja. Það væri hart að neita þessum mönnum, sem eiga jarðir, er fara árbatnandi, um lán vegna þess, að þeir hefðu ekki nægilegan bústofn „eða aðrar tekjuvonir“. 2. liður 5. gr. er því aðeins til trafala, auk þess sem hann er fullkominn hortittur.

Þá vík ég að hinu, sem er annað aðalatriði till. minna, að auglýsingar á nöfnum lánbeiðenda í Lögbirtingablaðinu falli niður. Hv. 3. landsk. hélt því fram, að auglýsingar þessar gætu á engan hátt verið niðurlægjandi, þar sem ekki væri tekið fram, hvort viðkomandi hefði fengið nokkuð eftirgefið eða ekki. Þetta er að nokkru rétt, en það er á almannavitorði, að þeir, sem leita á náðir Kreppulánasjóðs, eru í bóndabeygju, og það er þessum fátæku mönnum metnaðarmál, að það sé ekki auglýst opinberlega. Og til hvers væri opinber innköllun í bú þeirra, ef ekki væri gert ráð fyrir sérstökum eftirgjöfum eða ívilnunum af hálfu skuldheimtumanna?

Hv. 3. landsk. sagði, að menn tæki sárast, að þetta vitnaðist heima fyrir, en það gerir það hvor aðferðin sem notuð er, svo að mismunurinn er aðeins sá, að auglýsingarnar með nafnaregistrinu bætast við með núverandi fyrirkomulagi.

Ég mótmæli því, að réttur lánardrottna sé ekki fullkomlega tryggður með till. mínum. Skrárnar eiga að liggja frammi á aðgengilegum stöðum, hjá stjórn Búnaðarbankans, formanni héraðsnefndar og hreppsnefndaroddvita. Þetta hefði því fullt lagagildi.

Upplýsingar þær, sem taldar eru í 7. gr. 1.—9. tölul., með þeim breyt. á auglýsingaraðferð, sem till. mínar gera ráð fyrir, eru fullkomlega öruggar og því af engu misst, þótt hið kauðalega registur mnsækjenda falli niður í Lögbirtingablaðinu. Og þótt játað væri með hv. 3. landsk., að þetta auglýsingaatriði sé dálítið álitamál, þá er það einungis af því, að um nýmæli er að ræða, en ekki vegna þess, að í því felist veila í sjálfu sér, enda hafa engin rök verið borin fram gegn því.

Annars þýðir ekki að eyða fleiri orðum um þetta, og læt ég því staðar nema, en fel það á vald hv. þd., hvort hún leggur þessar till. mínar strax að velli eða skilar þeim áfram. Ég hygg, að fjöldi bænda, sem hafa verið á báðum áttum um, hvort sækja skyldi, af þeim ástæðum, sem ég hefi talið, ætlist til þess, að hv. Ed. felli ekki þessar till. mínar nú við 3. umr., heldur sendi þær til hv. Nd. og sjái, hvernig skipast þar um þetta mál, er síðar mun sannast, að þykir skipta máli, hver sem niðurstaðan verður nú.