29.11.1933
Neðri deild: 22. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 412 í B-deild Alþingistíðinda. (593)

10. mál, Kreppulánasjóður

Pétur Ottesen:

Mér skilst, að í þessari till. felist, að sparisjóðir geti ekki greitt viðskiptabanka sínum, t. d. Landsbankanum, skuldir með þessum bréfum, sem gert er ráð fyrir, að þeir í mörgum tilfellum verði að taka sem greiðslu upp í skuldir bænda. Það er nú svo með sparisjóði, að þeir eru skyldir til að geyma hluta af varasjóði sínum í Landsbankanum sem tryggingu. Þetta er vitanlega bundið fé. Það getur verið varasamt að ganga lengra en þetta í að binda það fé, sem þeir ef til vill þurfa að gripa til og svara út. En það er gert með því að skuldbinda þá til að geyma fé sitt í þessum bréfum, sem þeir geta ekki afsett fyrr en eftir langan tíma.

Sparisjóðir hafa vitanlega ekki annað en innstæðufé í sínum vörzlum. Það er hægt að heimta útborgun á því fé fyrirvaralítið eða fyrirvaralaust, og getur þetta atriði því verið mjög varhugavert fyrir þá, en einkanlega þó þá sparisjóði, sem hafa mest viðskipti við sveitirnar.

Ég vildi biðja hv. landbn. og hæstv. fjmrh. að taka til rækilegrar athugunar, hvort sparisjóðum sé fært að liggja með svo mikið óhandbært fé, sem hér gæti verið um að ræða, og hvort sparisjóðum muni ekki verða gert erfitt fyrir með þessu.