29.11.1933
Neðri deild: 22. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 413 í B-deild Alþingistíðinda. (594)
10. mál, Kreppulánasjóður
Fors.- og fjmrh. (Ásgeir Ásgeirsson):
Þessi aths. hv. þm. Borgf. er rétt að því leyti, að samkv. till. geta sparisjóðir ekki greitt Landsbankanum og Útvegsbankanum sínar gömlu skuldir með kreppulánasjóðsbréfum. Þeir geta aftur á móti veðsett bönkunum bréfin, og býst ég við, að ekki verði ástæða til að ætla, að bankarnir gangi að þeim sparisjóðum, sem hafa slík veð að bjóða.
Það er út af fyrir sig óeðlilegt, að sparisjóðir hafi heimild til að greiða sínar skuldir með þessum bréfum, ef Landsbankanum og Útvegsbankanum er það óheimilt. Það er ekki rétt að mismuna svo þessum lánsstofnunum, að allt eigi að frjósa inni hjá bönkunum, en ekkert hjá sparisjóðum og öðrum lánsstofnunum. Hér er því annaðhvort að gera, að láta bréfin stöðvast hjá öllum lánsstofnunum eða að opna leiðir fyrir þær allar til þess að losna við þau. En þá myndu þau að lokum vitanlega lenda hjá ríkissjóði, sem yrði þá ef til vill gert ókleift að standa við sínar skuldbindingar. Þetta þarf að girða fyrir. Það er ekki eðlilegt, að sparisjóðum sé gert mögulegt að losna við kreppulánasjóðsbréfin, svo að þeir geti haldið áfram að lána „frosið“ fjármagn. Ef á að flytja allt þetta frosna fé til Landsbankans og Útvegsbankans og láta sparisjóði hafa óeðlilega mikið fé með höndum, þá er það sama og stofna til nýrrar seðlaútgáfu. Nú hefir Landsbankinn einokun á seðlaútgáfu hér og ber ábyrgð á henni. (ÓTh: Í lögum, en ekki í framkvæmd). Í framkvæmd líka, því að Landsbankinn hefir útgáfu toppseðlanna, og það eru þeir, sem ráða úrslitum um seðlaútgáfu. Löggjafarvaldið getur þess vegna ekki og má ekki gera neinar þær ráðstafanir, sem hindra Landsbankann frá því að beita seðlaútgáfuréttinum, eða útgáfu toppseðlanna, ef hv. þm. G.-K. vill það heldur, eftir því sem ástæður eru til og fjárhagur þjóðarinnar heimtar. Hér er ekki um að ræða, að kreppulöggjöfin bindi fé, heldur voru kreppulánasjóðslögin sett vegna þess, að þetta fé var fyrirfram bundið.
Það verður því að láta sömu reglur gilda um allar lánsstofnanir, stórar og litlar, og ég efast ekki um, að þær stofnanir, sem hafa sæmileg veð, eins og þessi bréf eiga að vera, njóti sæmilegra kjara hjá lánardrottnum sínum.