29.11.1933
Neðri deild: 22. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 414 í B-deild Alþingistíðinda. (595)
10. mál, Kreppulánasjóður
Pétur Ottesen:
Þegar þessi lög voru samin í fyrra, var mikið um það rætt, að kreppulánasjóðsbréfin myndu enda göngu sína hjá bönkunum, sérstaklega Landsbankanum, og þar kæmu þau til með að liggja þangað til þau yrðu dregin út. Landsbankanum þótti það harður kostur að verða að taka við bréfum með fullu nafnverði og biða þess, að þau yrðu dregin út. Sú n., sem hafði þetta mál til meðferðar, hafði gengið inn á það, að nokkur afföll skyldu vera á þessum bréfum, allt að 10%. í því fólst nokkur linkind fyrir þær lánsstofnanir, sem yrðu að bíða með bréfin, en það hefði orðið hlutverk Landsbankans í langsamlega flestum tilfellum. Á það ber að líta, að bréfin eru vitanlega notuð til að borga með þeim skuldir, sem erfitt yrði um fljóta greiðslu á á annan hátt, skuldir, sem eru frosnar. Aftur á móti má ganga út frá því, að þessi bréf yrðu tryggt fé, þó að þau yrðu að vísu bundið fé hjá Landsbankanum.
Ég býst við, að þessi till. sé komin fram fyrir tilmæli Landsbankastjórnarinnar, sem hefir þótzt nokkuð hart leikin, þegar hún var skylduð til að taka þessi bréf án nokkurra affalla, því tillögur, sem fram komu um það að hafa allt að 10% afföll af bréfunum, voru felldar. En ég vil benda á það viðvíkjandi sparisjóðunum, að það getur komið sér mjög illa fyrir þá að verða að binda svo og svo mikið af sínu fé á þennan hátt, þar sem þeirra starfsemi er svo háttað, að þeir verða að svara út innstæðufé eftir því sem af þeim er krafizt.
Ég sé fram á það, að þeir sparisjóðir, sem mest skipta við landbúnaðinn, geta átt mjög erfitt með að inna af hendi skyldur sínar í þessu efni, ef mikið fé verður bundið hjá þeim vegna þessara kreppulánasjóðsbréfa.
Það getur verið, að reki að því, að gera þurfi ráðstafanir viðvíkjandi þeim lánsstofnunum, sem þetta fé fá, og virðist mér þá, að hægara verði að gera þær viðvíkjandi einni stofnun, t. d. Landsbankanum, heldur en að þurfa að gera þær viðvíkjandi mörgum stofnunum.
Að endingu vil ég ítreka það, hvort nógu vel hafi verið athugað, að starfsemi sparisjóða, einkum þeirra, sem mest skipta við sveitirnar, geti ekki liðið hnekki við framkvæmd þessara laga, ef lög verða, og eins að þeim sé ekki gert erfiðara fyrir en þörf er á.