16.11.1933
Neðri deild: 11. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 421 í B-deild Alþingistíðinda. (610)

26. mál, verkamannabústaðir

Flm. (Héðinn Valdimarsson):

Ég ber hér fram frv. um vaxtalækkun á lánum til verkamannabústaðanna, og er það í samræmi við þá lækkun vaxta, sem fram hefir farið hér á landi á þessu ári. Að öðru leyti vísa ég til grg. frv. og óska þess, að frv. verði vísað til 2. umr. og til fjhn.