25.11.1933
Neðri deild: 19. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 421 í B-deild Alþingistíðinda. (613)

26. mál, verkamannabústaðir

Frsm. (Héðinn Valdimarsson):

N. hefir fallizt á þær ástæður, sem voru í grg. þessa frv. um að vaxtakjör þau, sem nú eru í 1. um verkamannabústaði, væru of há, en hefir hinsvegar ekki viljað fallast á að færa vextina úr 6% niður í 5%, heldur látið vera svigrúm þar á milli, ef vaxtakjör bötnuðu síðar meir og væri þá hægt að breyta til án þess að breyta 1. Ég hefi fallizt á þetta f. h. flm., þótt hitt væri vitanlega hreinlegast, að ákveða vextina 5%, og ég kysi það helzt. En eins og stendur hefir það ekki svo mikla raunverulega þýðingu, þar sem þetta verkar ekki aftur á bak, en vextir yrðu nú ákveðnir 5%, og vil ég því mæla með því, að frv. verði samþ. með þessari breyt. Önnur smábreyt. er gerð þarna, sem stafar af prentvillu í l. Þar hafði misprentazt „bankaábyrgð“, en átti að standa „bakábyrgð“ bæjarfélagsins.