14.11.1933
Neðri deild: 9. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 427 í B-deild Alþingistíðinda. (647)

20. mál, síldarbræðsluverksmiðja á Norðurlandi

Frsm. (Finnur Jónsson):

Þetta frv., sem sjútvn. flytur hér, er flutt að eindreginni ósk allra þeirra, sem síldveiði stunda á Norðurlandi. Reynslan er sú, að enda þótt á síðastl. sumri hafi starfræksla síldarverksmiðja verið aukin af ríkisins hálfu, svo að vinnslan var um 73 þús. málum meiri en áður, þá vantar ennþá mjög mikið til, að skipin fái sæmilega afgreiðslu. Skipin hafa orðið að liggja dögum saman og vikum saman við bryggjurnar í blíðskaparveðri og mokafla, af því að þau gátu ekki losnað við síldina.

Verksmiðjustjórinn á Siglufirði álítur, að afli skipanna, sem stunduðu þessa veiði fyrir síldarverksmiðjuna á Siglufirði síðastl. ár, hefði getað orðið 25% meiri, ef skipin hefðu fengið nokkurn veginn sæmilega afgreiðslu. Þetta munar þá, sem síldveiði stunda, með því lága verðlagi þó, sem á bræðslusíld var síðastl. sumar, a. m. k. 150 þús. kr. Þau 50 skip, sem lögðu upp í síldarverksmiðju ríkisins, hefðu getað að áliti verksmiðjustjórans, veitt fyrir 150 þús. kr. meira, ef þau hefðu haft viðstöðulausa afgreiðslu. Auk þess voru mörg skip, sem ekki gátu fengið samninga við verksmiðjuna og urðu því að vera á hrakningum með veiði sína. Sú viðbót, sem sjútvn. stingur hér upp á, ætti því að auka afkomumöguleika þeirra skipa, sem síldveiði stunda og leggja upp í bræðslu a. m. k. um hluta og jafnframt gera það að verkum, að fleiri skip geti stundað síldveiðar en verið hefir. Það má vitanlega segja, að ríkisskuldirnar séu nú orðnar svo miklar, að ekki sé vert að bæta við þær. En athugandi er, til hvers skuldirnar eru stofnaðar, hvort lán eru tekin til eyðslu eða til varanlegra atvinnubóta í landinu, til þess að auka framleiðslu landsmanna. Að því er einmitt stefnt með till. sjútvn.

Það má geta þess, að verksmiðja sú, sem við í sjútvn. förum fram á, að ríkisstj. verði veitt heimild til að reisa, mun í meðalári geta unnið úr minnst 100 þús. málum síldar. Með hinu lága verði, sem nú er á síldarafurðunum, mundi sú vinnsla gefa útgerðarmönnum og sjómönnum 300 þús. kr. tekjur, verkamönnum 70 þús. kr. í vinnulaun, og ríkissjóði, með þeim að vísu ósanngjörnu tollum, sem á síldarafurðirnar eru lagðar nú, 30 þús. kr. tekjur á hverju ári. Það má því fyllilega gera ráð fyrir, að slík verksmiðja mundi gera þrennt í senn: auka atvinnu sjómanna og verkamanna, auka möguleika útgerðarinnar og auka tekjur ríkissjóðs að verulegum mun.

Nú hefir sjútvn. alveg einróma lagt til, að lagt verði út í að byggja þessa verksmiðju. Hinsvegar var ekki fullt samkomulag um það í n., þegar hún hafði þetta mál til umr., hvar verksmiðjuna skyldi reisa. Ég flutti upphaflega till. um það í n., að lánsheimildin yrði miðuð við viðbótarbyggingu við síldarverksmiðju ríkisins á Siglufirði. Og því er ekki að leyna, að mjög margt mælir með því, að Siglufjörður sé valinn til þessara framkvæmda. Ég get sagt fyrir mitt leyti, að ég vil líta á þetta hlutdrægnislaust, enda hefi ég engra hagsmuna að gæta Siglufjarðar vegna. Það er nú einu sinni svo, að Siglufjörður er miðstöð síldveiðanna. Þar eru aðalsöltunarstöðvarnar og vitanlega er mjög nauðsynlegt. að síldarsöltunin og síldarbræðslan fari fram á sama stað. Styður þá hver grein síldveiðinnar aðra. Einnig má benda á það Siglufirði til framdráttar í þessu máli, að eftir því sem verksmiðjustjóri síldarbræðsluverksmiðju ríkisins segir, má gera ráð fyrir, að afurðir verksmiðjunnar á síðastl. ári hefðu orðið a. m. k. 20 þús. kr. meira virði en þær urðu, ef vélarnar hefðu verið það stórar, að hægt hefði verið að vinna síldina jafnóðum úr þrónum, áður en hún fór að skemmast.

Með því að byggja hina nýju síldarverksmiðju á Siglufirði mætti nota sömu bryggjur, sömu þrærnar, sömu efnarannsóknarstofuna og sömu skrifstofur sem síldarverksmiðja ríkisins hefir nú. Auk þess sparaðist talsvert á rekstrarkostnaðinum, þar sem bræðslustöðvarnar yrðu að öllu leyti undir sömu stjórn þarna á staðnum. Eftir þeim upplýsingum, sem ég hefi fengið hjá verksmiðjustjóranum á Siglufirði, mætti koma upp slíkri viðbót við síldarbræðslu ríkisins, sem hér er um að ræða, fyrir 500 þús. kr. Verksmiðjustjórinn hefir leitazt fyrir um tilboð í verksmiðjubyggingu frá Noregi, og liggur fyrir tilboð frá norskri verksmiðju um vélar og hús komið til Siglufjarðar fyrir 227 þús. kr. norskar.

Hinsvegar hefir því verið haldið fram, og það mjög með réttu, að ýmislegt mæli með því að reisa þessa verksmiðjubyggingu við Húnaflóa. Húnaflói hefir síðastl. sumar reynzt ágætt síldarsvæði. Síldin þar hefir verið stærri en sú, sem austar hefir veiðzt og þess vegna betur fallin til söltunar, sérstaklega fyrir Svíþjóðarmarkaðinn. Einnig hefir hún reynzt 2% feitari, og mundi þannig gefa betri árangur í bræðslu. En verksmiðju við Húnaflóa yrði alls ekki hægt að byggja á þessu ári. Til þess þarf minnst tvö ár, og sú bið myndi kosta sjávarútveginn mikið fé.

Hvað sem þessu líður, hefir n. ekki viljað gera það að ágreiningsefni, hvaða staður væri valinn, heldur reynt að haga till. sínum þannig, að sem allra fyrst yrði hafizt handa, ef Alþingi fellst á að veita heimildina. N. leggur áherzlu á, að reynt verði að koma þessari verksmiðjubyggingu upp þegar á næsta sumri, en ég fyrir mitt leyti álít mjög litlar líkur til þess, að það takist, ef annar staður en Siglufjörður er valinn, því eins og ég benti á áðan, er þar svo margt fyrir hendi, sem nota má, en byggja þyrfti að nýju annarsstaðar.

N. hugsar sér að gera um þetta ýtarlegra álit síðar á þinginu, ef frv. nær fram að ganga, og leggja þá fyrir ríkisstj. ákveðnar till. um, hvar verksmiðjuna beri að reisa. Eins og ég tók fram áðan, leggur n. áherzlu á, að ágreiningur um staðinn verði ekki látinn tefja málið, og með því að hér fara mjög saman hagsmunir ríkissjóðs, útgerðarmanna, verkamanna og sjómanna, þá vænti ég, að málið fái skjóta og góða afgreiðslu hér í hv. deild.