14.11.1933
Neðri deild: 9. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 437 í B-deild Alþingistíðinda. (651)
20. mál, síldarbræðsluverksmiðja á Norðurlandi
Frsm. (Finnur Jónsson):
Það er í raun og veru ekki langt á milli okkar hv. þm. G.-K. í þessu máli. Við erum sammála um aðalatriðið, að það þurfi að reisa síldarbræðslustöð á næsta sumri. Um hitt atriðið, sem er minna atriðið, hvar eigi að reisa stöðina, erum við ekki sammála. Ég held því fram, að það eigi að reisa hana fyrst þar, sem fljótlegast er að reisa hana, og þar, sem það kostar minnst, og þar, sem hún kemur fljótast að gagni. Ég hefi fært rök fyrir þessu, sem hv. þm. G.-K. hefir að mjög miklu leyti fallizt á. En hann er hræddur við, að það sé hærra kaupgjald á Siglufirði en víða annarsstaðar. Þetta er rétt. En hv. þm. þarf ekki að halda, að það verði reist svo síldarbræðslustöð hér á landi, sem safnar að sér fólki, að þar verði ekki um leið stofnuð verklýðsfélög, sem reyna að hafa hönd í bagga með kaupinu. Ég er ekki í neinum vafa um, að það er framkvæmanlegast og fljótlegast og kemur fyrst að gagni að reisa verksmiðjuna á Siglufirði. En hitt er ég heldur ekki í neinum vafa um, að samt er eftir sama þörfin fyrir verksmiðju við Húnaflóa. Því enn þá liggur meiri hlutinn af togaraflotanum í Rvík ónotaður um síldveiðitímann, á þeim tíma, sem enginn vafi er á, að síldarútgerð fyrir togarana mundi borga sig. Það er alveg víst, að Húnaflói er það gott síldarsvæði, að þegar höfn kemur á Skagaströnd verður þar sett upp síldarbræðslustöð. En það er ekkert vit í því að láta byggingu stöðvarinnar bíða eftir því að byggð verði höfn á Skagaströnd. Það má segja, að sú síldarganga, sem komið hefir á Húnaflóa. hafi ekki komið að fullu gagni, vegna þess að síldin hafi verið of gömul í salt, þegar til Siglufjarðar hefir komið. Sama má segja um síld, sem veiðist úti fyrir Siglufirði, að hún yrði of gömul til söltunar, ef ætti að flytja hana til Skagastrandar.
Hv. þm. G.-K. sagði, að mér skildist, að ég og framsóknarflokksmennirnir í sjútvn. mundum ekki hafa reist þessa verksmiðju á Siglufirði, ef við gerðum það fyrir okkar eigin peninga. Þetta eru nú bara getsakir, sem ekki eru á neinum rökum byggðar, fyrst og fremst vegna þess, sem ég hefi þegar tekið fram, að framkvæmdir á Siglufirði kæmu fyrst að gagni, og í öðru lagi gerðu þær verksmiðjuna, sem fyrir er, verðmeiri.
Ég hefi bent á það, að verksmiðjustjórinn hefir í áliti, sem hann hefir gefið form. verksmiðjustj., sagt, að afurðir verksmiðjunnar á Siglufirði síðastl. sumar hefðu getað orðið 20 þús. kr. verðmeiri, ef ekki hefði þurft að biða svo lengi eftir síldinni. Ég ætla, að hv. þm. G.-K. minnist þess, að þegar við vorum að ræða þetta í n., þótti honum þetta of lágt reiknað. — Þegar við athugum þetta og það, að viðbótarbygging á Siglufirði gerir verksmiðjuna, sem þar er, verðmeiri, þá ætla ég, að hv. þm., og þar á meðal hv. þm. G.-K., sannfærist um það, að það eru getsakir einar um mig og samnm. mína, að við myndum ekki reisa síldarbræðslustöð á Siglufirði fyrir okkar eigin peninga.
En hvað sem þessu líður, legg ég áherzlu á það, að aðalatriðið í þessu máli komist í framkvæmd, og það sem allra fyrst. En það er, að reist verði síldarbræðslustöð, sem vinnur úr ekki minnu en 2 þús. málum á sólarhring, sem allra fyrst, og helzt á næsta sumri.
Það er réttilega fram tekið hjá hv. þm. G.-K., að þessu fylgir nokkur áhætta. Það fylgir þessu sama áhætta og öllu öðru, sem verið er að gera í landinu. Þessu fylgir náttúrlega sú áhætta, að markaðsverð bregðist. Nú er verðið svo lágt, að varla er hægt að hugsa sér það lægra. En áhættan er minni á þessu en mörgu öðru, vegna þess að markaðurinn fyrir síldarmjöl er stór og virðist alltaf stækka. Menn hætta ekki við að gera út skip eða fara á sjó, þó verið geti, að afli bregðist á einni og einni vertíð. Menn hætta ekki við að bjarga sér fyrir því, og ég vænti, að hv. þm. G.-K. sé mér sammála um, að þrátt fyrir allt eigum við að halda áfram að vinna að aðalatriði þessa máls, því að verksmiðjan komist upp sem bráðast.