18.11.1933
Neðri deild: 13. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 452 í B-deild Alþingistíðinda. (672)

20. mál, síldarbræðsluverksmiðja á Norðurlandi

Haraldur Guðmundsson [óyfirl.]:

Síðasta Alþ. heimilaði stj. að ganga í ábyrgð fyrir allt að 350 þús. kr. láni til að reisa síldarbræðsluverksmiðju á Seyðisfirði, með nánari skilyrðum, sem fyrir því voru sett. Nú eru horfur á því, að þetta þing samþ. allt að millj. kr. lántöku til að reisa verksmiðju á Norðurlandi og 70 þús. kr. ábyrgð fyrir Neskaupstað. Nú óttast ég, að svo geti farið, að ef hvorttveggja þetta verður samþ., þá yrði erfitt um að koma af stað verksmiðju á Seyðisfirði. Ég átti því tal við sjútvn. og óskaði eftir, að verksmiðju þeirri, sem í ráði er að reisa á Norðurlandi, yrði ákveðinn staður á Siglufirði. Ég lít svo á, að það sé margt, sem mælir með Siglufirði. Enginn vafi er á því, að eign ríkissjóðs, sem þar er fyrir, batnar stórum, ef þar er reist verksmiðja í viðbót, sem brætt getur 2000 mál á sólarhring. Sú verksmiðja gæti notazt við sömu þrær og gamla verksmiðjan og verið undir sömu framkvæmdarstjórn, án nokkurs aukakostnaðar. Og enginn vafi er á því, að auknir sölumöguleikar á bræðslusíld eru mestir á Siglufirði.

Það eru talin tormerki á því, að verksmiðjan á Norðurlandi komist upp í sumar, og má vel vera, að svo sé. En hinsvegar væri hægt að koma upp síldarverksmiðju á Seyðisfirði fyrir 1000 mál strax í sumar. Ábyrgð ríkisins er að vísu bundin við 600 mál, en verðmunur er svo lítill, að hitt borgar sig. Eftir tilboðum, sem nú hafa komið, á verksmiðja, sem bræðir 1000 mál, að kosta 400 þús. kr., en minni verksmiðjan átti að kosta 270 þús. Ég mæltist til þess við n., að hún tæki upp í frv., að verksmiðjan yrði bundin við Siglufjörð og byggð yrði líka verksmiðja á Seyðisfirði. N. gat ekki fallizt á fyrra atriðið, en lofaði að mæla með byggingu verksmiðju á Seyðisfirði.

Að minni hyggju er sjálfsagt, að síldarbræðsluverksmiðja komi upp við Húnaflóa, og þá á Skagaströnd. En þar eru ekki skilyrði fyrir slíka verksmiðju fyrr en hafnarmannvirkin eru tilbúin, því ófullnægjandi er að byggja garð út í skerið, eins og stungið hefir verið upp á. Hlýtur því að verða dráttur á því, að verksmiðjan verði reist þar.

Ég mun ekki flytja brtt. að þessu sinni, en greiði frv. atkv. til Ed., í von um, að lagfæring verði gerð á því þar.