18.11.1933
Neðri deild: 13. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 453 í B-deild Alþingistíðinda. (673)
20. mál, síldarbræðsluverksmiðja á Norðurlandi
Jón Pálmason:
Við 1. umr. var töluvert rætt um staðinn, eins og hv. þdm. muna. Fjhn. þessa máls gerðu þá ráð fyrir því, að hægt yrði að reisa verksmiðjuna fyrir næstu síldarvertíð. Nú er komið í ljós, að verksmiðjan verður tæplega reist á þessu ári. Úr því málið horfir þannig við, fer að verða vafasamt, hvort rétt sé að afgr. málið nú á aukaþinginu.
Hv. þm. Seyðf. taldi Skagaströnd einna heppilegastan stað, vegna þess hve þar hagaði til um veiði, en hinsvegar væri ekki hægt að flýta verksmiðjunni eins og þyrfti, ef hún ætti að byggjast þar, vegna þess, að hafnarmannvirkin væru ófullgerð. Ég tel óheppilegt að hrúga öllu saman á Siglufirði, enda er aðalástæðan fyrir því að reisa verksmiðjuna þar fallin niður, þar sem verksmiðjan verður ekki byggð í sumar. Vildi ég því mælast til, að sjútvn. gengi inn á að fresta málinu og taka það út og afgr. það ekki nema eftir nánari athugun. En þó n. fallist ekki á þetta, mun ég engu að síður greiða málinu atkv. mitt, í því trausti, að stj. hrapi ekki að málinu og hafi gætur á, að hinn bezti staður sé valinn.