18.11.1933
Neðri deild: 13. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 454 í B-deild Alþingistíðinda. (674)

20. mál, síldarbræðsluverksmiðja á Norðurlandi

Tryggvi Þórhallsson:

Sá skilningur liggur opinn fyrir, að með orðunum „á Norðurlandi“ er átt vil alla norðurströnd landsins, en ekki Norðlendingafjórðung einan. Hinsvegar vil ég taka undir þá till., að það sé á valdi stj. að velja staðinn. En ég verð að halda því fram, að ef verksmiðjan verður reist við Húnaflóa, þá verði hún reist þar, sem hafnir eru sjálfgerðar, svo sem er á Reykjarfirði, Ingólfsfirði eða á Steingrímsfirði. Út af þeim ummælum hv. þm. Seyðf., að á Siglufirði væri um eign ríkisins að ræða, sem hækka myndi í verði við þessar aðgerðir, vil ég benda á, að svo hagar líka til í Ingólfsfirði, því að þar eru allar jarðir ríkiseign.

Ég álít enga ástæðu til að fresta málinu, eins og hv. þm. A.-Húnv. lagði til. Sjútvn. hefir lagt áherzlu á, að málið nái fram að ganga á þessu þingi, og ef ætti að fara að bíða eftir fjársöfnun til hafnargerðar á Skagaströnd, er hætt við, að sú bið gæti orðið nokkuð löng. Það hefir verið opin leið fyrir Skagstrendinga áður að byrja á hafnargerðinni, og hún hefir ekki strandað á ríkissjóði, heldur á Austur-Húnvetningum sjálfum. — Ég mun því greiða frv. atkv. og get jafnframt fellt mig við brtt. hv. þm. Borgf.