18.11.1933
Neðri deild: 13. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 455 í B-deild Alþingistíðinda. (676)

20. mál, síldarbræðsluverksmiðja á Norðurlandi

Ólafur Thors:

Ég vil láta í ljós þann skilning, að í orðunum „á næsta ári“ felist það, að verði ekki hægt að koma verksmiðjunni upp í sumar, verði henni komið upp fyrir síldarvertíð 1935, og hraðinn miðaður við það. Eftir þessar upplýsingar álít ég, að niður sé fallin aðalástæðan, sem mælir með því, að verksmiðjan yrði reist á Siglufirði, svo að fyrr beri að líta á alla aðra staði. Get ég í því efni vísað til ræðu minnar við 1. umr.

Mér er óhætt að segja það f. h. sjútvn., að með orðunum „á Norðurlandi“ á hún auðvitað við alla norðurströnd landsins, vestan Húnaflóa líka.

Við höfum átt tal við formenn tveggja skipstjórafélaga, og hölluðust þeir einkum að Reykjarfirði, en töldu jafnframt hagkvæmt að koma upp síldarsöltun á Skagaströnd. Sjálfur teldi ég þó heppilegast að hafa hvorttveggja á sama stað. Ég verð, eins og hv. þm. A.-Húnv., að telja það skipta miklu máli, að góðar samgöngur séu við héruðin frá þeim stað, sem verksmiðjan verður reist á, og ennfremur hitt, að fleiri atvinnuskilyrði séu í grennd við staðinn en síldarbræðslan ein, og þau skilyrði eru óviða betri en á Skagaströnd. Ég vil vekja athygli á þessu áður en endanlegt val fer fram á staðnum.

Út af tilmælum hv. þm. Seyðf. um, að nokkrum hluta fjárins verði varið til síldarbræðsluverksmiðju á Seyðisfirði, verð ég að segja, að ég er engan veginn viss um, að slíka verksmiðju væri hægt að reka hallalaust, en hinsvegar vil ég styðja að því, að þeim mönnum, sem þar eiga hlut að máli, sé hjálpað eftir því sem föng eru á. Ég teldi réttara, að hann berðist fyrir þessu máli í Ed., þar sem margir menn kunnugir á Austfjörðum eiga sæti, svo að okkur gefist tími til að athuga þetta mál betur. Ég mun því líta á till. hans með velvilja, þótt ég vilji ekki binda hendur mínar fyrir fram. Ég tel fénu bezt varið á þann hátt að reisa verksmiðju við Húnaflóa, en vil þó hafa Seyðisfjörð í huga, ef eitthvað verður afgangs til verksmiðjubyggingar þar.