18.11.1933
Neðri deild: 13. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 466 í B-deild Alþingistíðinda. (687)

20. mál, síldarbræðsluverksmiðja á Norðurlandi

Guðbrandur Ísberg:

Það sýnir áhuga manna á þessu máli, að nú hefir víst helmingur hv. þdm. tekið til máls í því. Allir eru sammála um það, að framkvæmdar sé þörf, en deilurnar snúast um það, hvar verksmiðjan eigi að vera. Ég vil nú benda á enn einn stað, sem ég tel líklegt, að menn geti orðið sammála um, að sé sá allra hentugasti. Þessi staður er Akureyri. Ég vil benda á það, að síldarsöltunarstöðvunum á Akureyri er bráðnauðsynlegt að hafa aðgang að bræðslu. Í þessu sambandi er að vísu rétt að taka fram, að undanfarin ár hefir erlend síldarbræðsluverksmiðja starfað á Krossanesi, og hefir hún að mestu fullnægt þörf söltunarstöðvanna á Akureyri og við innanverðan Eyjafjörð. Fram að síðasta ári mun þessi verksmiðja að mestu leyti hafa keypt síld af íslenzkum skipum, eða 85% allrar síldar, er þar var tekin, aðeins 15% af erlendum skiptun. Nú er þessu gerbreytt. Í skjóli norska samningsins kaupir verksmiðjan nú yfir 50% síldar þeirrar, er hún vinnur úr, af erlendum skipum. Þetta er alvarlegt atriði fyrir söltunarstöðvarnar á Eyjafirði, og ég vona, að ekki verði langt þar til heimild Krossanesverksmiðjunnar til síldarkaupa verði afnumin með því að segja upp norska samningnum. Í trausti þess hefi ég ekki fyrr tekið til máls í þessu verksmiðjumáli. Ég gat þó ekki látið hjá líða að benda á þá brýnu nauðsyn, sem er á slíkri verksmiðju á Akureyri, og vænti, að hæstv. ríkisstj. taki einnig tillit til þessa staðar, þegar að valinu kemur.