18.11.1933
Neðri deild: 13. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 467 í B-deild Alþingistíðinda. (688)
20. mál, síldarbræðsluverksmiðja á Norðurlandi
Bernharð Stefánsson:
Ég hefi haldið því fram, að það, sem ætti að ráða stað verksmiðjunnar, væri þörf atvinnuvegarins sjálfs, og ekkert annað. En umr. um staðinn halda stöðugt áfram, og í þeim er komið fram með ýmsar aðrar ástæður en þessa, sem ég nú nefndi. Ein ástæðan er sú, að taka þurfi tillit til landbúnaðarins, þeirra bænda, sem komi til með að selja verkamönnum verksmiðjunnar afurðir sínar. — Ef ætti að taka slíkar ástæður til greina, þá vil ég benda á það, af því að Siglufjörður hefir nokkrum sinnum verið nefndur í þessu sambandi, að slík aðstaða er ekki slæm þar. Eftir stuttan tíma má búast við, að svo að segja öll Skagafjarðarsýsla verði uppland Siglufjarðar. En eigi að taka þessa ástæðu gilda, þá finnst mér óneitanlega, að hv. þm. Ak. hafi mest til síns máls. Eigi að miða við allt annað en þarfir atvinnuvegarins sjálfs, því þá ekki að setja verksmiðjuna niður í höfuðstað Norðurlands, Akureyri? Aðstaða bænda til þess að selja verkafólkinu afurðir sínar væri hvergi betri. — En fyrst hér hafa verið nefndir staðir svo sem Húsavík, Skagaströnd, Sauðárkrókur og Blönduós, vildi ég benda á það, að fleiri staðir við Eyjafjörð en Akureyri gætu komið til mála; ég skal nefna Hrísey, Dalvík, Svalbarðseyri, Árskógsströnd. — En sannleikurinn er sá, að þessar umr. hér eru að meira eða minna leyti á röngum grundvelli byggðar. Það er ekki hér, sem á að afgera nokkuð um staðinn, heldur á að fara fram óhlutdræg rannsókn, með hag síldarútvegsins eins fyrir augum, og fyrir því verðum við að beygja okkur.